Fæddist á Ís­landi en þurfti ára­tugi til að fá það stað­fest - Vísir

Fæddist á Ís­landi en þurfti ára­tugi til að fá það stað­fest - Vísir

Fæddist á Ís­landi en þurfti ára­tugi til að fá það stað­fest - Vísir

Saga Jónínu nær þó mun lengra aftur. Hún fæddist í Reykjavík árið 1959, dóttir íslenskrar móður og bandarísks föður. Faðirinn hvarf snemma úr lífi hennar og í æsku var nær ekkert talað um hann. Tveimur áratugum síðar ákvað Jónína sjálf að hafa uppi á honum og innan nokkurra mánaða var hún flutt til Alabama. Þar bjó hún næstu 14 árin en þrátt fyrir sterk tengsl við Bandaríkin var Ísland alltaf heima.

Vissi ekki að hann ætti dóttur

Leiðir foreldra Jónínu lágu saman undir lok sjötta áratugarins. Móðir Jónínu var sextán ára unglingsstúlka úr Reykjavík. Faðir Jónínu var Bandaríkjamaður sem gegndi herþjónustu á Keflavíkurflugvelli en þegar meðgangan kom í ljós hafði hann verið sendur aftur vestur um haf. Hann vissi því ekki að barn væri á leiðinni.

„Amma mín, sem sagt mamma mömmu, náði að koma upplýsingum til hans í gegnum sendiráðið. Mamma vissi nógu mikið um hann til þess að það væri hægt að finna hann. Ég fæddist í ágúst og þá hringdi hann í mömmu. Eins og sannur Bandaríkjamaður tók hann þetta bara alla leið og bað hennar í símanum.“

Móðir Jónínu hugðist halda til Bandaríkjanna með dóttur sína og faðir hennar flaug frá Alabama til New York til að taka á móti þeim. Þegar vélin lenti kom hins vegar engin ung íslensk móðir með smábarn út. Móðir Jónínu hafði hætt við ferðina á síðustu stundu.

„Ég held að það hafi einfaldlega runnið upp fyrir mömmu út í hvað hún var að fara. Hún var bara sextán ára og varð líklega hrædd.“

Faðir Jónínu gafst þó ekki upp. Í janúar 1960 var amma Jónínu heima að passa hana þegar dyrabjöllunni var hringt. Fyrir utan stóð faðir hennar, sem hafði reynt að fá sig fluttan aftur til Íslands á vegum hersins. Hann bað móður Jónínu aftur og í þetta sinn varð svarið já. Þau gengu í hjónaband 30. janúar 1960.

„Maður talaði ekkert um pabba“

Síðar sama ár fæddist bróðir Jónínu og árið 1961 flutti fjölskyldan til Alabama. Dvölin í Bandaríkjunum varð þó stutt. Eftir um tíu mánuði komu amma og afi Jónínu í heimsókn og móðir hennar ákvað að halda með þeim heim til Íslands ásamt börnunum. Öðrum var sagt að aðeins væri um heimsókn að ræða en síðar komst Jónína að því að móðir hennar hafði frá upphafi ætlað sér að vera um kyrrt.

„Mamma sagði mér seinna að hún hefði aldrei ætlað sér að fara aftur út. Þetta voru ekki sælar minningar hjá henni og eftir að ég kynntist föður mínum skildi ég líka að þau hefðu líklega ekki verið gift mikið lengur þótt hún hefði orðið eftir þarna. Við komum heim í nóvember 1961 og hann reyndi að fá hana aftur í nokkur ár. Frá því ég man eftir mér var reglan síðan bara sú að maður talaði ekkert um pabba. Það var ekki minnst á hann og það boðaði ekkert gott að nefna hann.“

Jónína á engar skýrar minningar um föður sinn frá þessum fyrstu árum. Eftir heimkomuna bjó móðir hennar fyrst með börnin hjá fjölskyldunni í Reykjavík en síðar varð úr að Jónína yrði eftir hjá ömmu sinni og afa. Afi hennar lést þegar hún var lítil og það var því amma hennar sem annaðist uppeldi hennar að stærstum hluta.

„Mamma bjó líka í Reykjavík þannig að við umgengumst alveg, en amma var alltaf í rauninni mamma mín. Þegar ég var tólf eða þrettán ára flutti mamma til Stykkishólms. Þegar ég varð fjórtán ára fannst mér miklu meira spennandi að vera þar og flutti því til hennar. Ég var þar í nokkur ár og flutti svo aftur til Reykjavíkur.“

Æska Jónínu var þannig að mestu leyti íslensk. Hún ólst upp í Reykjavík, bjó um tíma í Stykkishólmi og gekk alla sína grunnskólagöngu hér á landi. Faðir hennar var á sama tíma hinum megin við Atlantshafið og nær ekkert samband var þeirra á milli.

Faðir Jónínu var farinn aftur til Bandaríkjanna þegar móðir hennar uppgötvaði að hún væri ófrísk.Vísir/Anton Brink

„Þú ert bara ekki til í okkar bókum“

Árið 1977 var Jónína sautján ára og ætlaði að fara í frí til Noregs og sótti því um vegabréf. Þegar hún mætti viku síðar til að sækja það kom í ljós að eitthvað var athugavert við umsókn hennar.

„Þá var mér sagt: „Heyrðu, þú ert bara ekki til í okkar bókum.“ Ég varð alveg gáttuð og konan fór að spyrja mig út í eftirnafnið mitt. Ég sagði að það væri bandarískt og hún sagði mér þá að fara í bandaríska sendiráðið. Ég gerði það og fékk vegabréf. Ég hugsaði ekkert meira um málið. Ég var komin með vegabréf og þar með var þetta afgreitt í mínum huga.“

Þarna fékk Jónína í fyrsta sinn skýra vísbendingu um að ríkisfangsstaða hennar væri ekki með þeim hætti sem hún og fjölskyldan höfðu gengið út frá.

„Þetta kom móðurfjölskyldunni algjörlega í opna skjöldu. Enginn kannaðist við að hafa veitt samþykki eða upplýsingar sem hefðu átt að leiða til þess að ég missti íslenskan ríkisborgararétt. Ég var líka á íslenska vegabréfinu hennar mömmu þegar við fórum út. Ég veit það vegna þess að amma var svo dugleg að geyma allt og ég hef séð það. Þeir voru með skráningu um að eitthvað hefði átt sér stað en eftir því sem ég skildi voru ekki endilega frekari gögn til.“

Vaknaði með óbilandi þörf fyrir að finna pabba

Ríkisfangsmálið fékk að liggja. Tveimur árum síðar, árið 1979, vaknaði Jónína hins vegar einn morgun með sterka tilfinningu um að hún yrði að finna föður sinn.

„Ég veit ekki af hverju ég fékk þessa tilfinningu en hún lét mig ekki í friði. Ég þurfti að finna pabba minn. Ég spurði mömmu í fyrsta skipti eftir mörg ár hvar þau hefðu átt heima og hvaða önnur nöfn hún gæti gefið mér. Hún var bara með tvö nöfn því hún vissi svo lítið meira. Það var náttúrulega ekkert internet þá og ég hringdi því í upplýsingastofu fyrir útlönd. Konan þar ætlaði að reyna að hjálpa mér.“

Um kvöldið hafði tekist að finna mann sem hugsanlega tengdist fjölskyldunni. Hann var ekki heima en móðir hans var þar og Jónínu bauðst að taka símtalið. Hún kynnti sig sem Josie, gælunafnið sem faðir hennar hafði notað um hana. Konan reyndist vera amma Jónínu.

„Hún talaði og talaði og mér tókst að fá heimilisfang hjá henni. Þegar ég lagði á áttaði ég mig svo á því að ég hafði ekki spurt eina einustu spurningu um pabba. Hún hafði heldur ekki nefnt hann á nafn. Ég skrifaði henni því bréf og sendi myndir. Mjög stuttu síðar, mig minnir um viku, fékk ég símtal að utan. Þá var það pabbi.“

Amman hafði haft samband við föður Jónínu og sagt honum að „Josie“ hefði hringt. Fyrstu viðbrögð hans voru: „Josie who?“ Eftir það sem hafði gerst á Íslandi hafði hann bannað fjölskyldunni að ræða börnin sem hann átti hér, en enginn annar í fjölskyldunni gekk undir þessu nafni.

Flutningar til Alabama

Feðginin náðu sambandi í mars 1979 og þremur mánuðum síðar voru Jónína og eiginmaður hennar flutt til Alabama. Þau höfðu gifst áður en þau fóru út.

„Við fórum út með opnum huga. Við vissum ekki hvort við værum bara að fara í mánaðarfrí eða hvort eitthvað meira yrði úr því. Við komum út í júní, maðurinn minn var farinn að vinna í júlí og ég í ágúst. Í október vorum við að kaupa hús. Við bjuggum fyrst í Prattville, um 20 mínútur frá Montgomery þar sem pabbi bjó. Seinna fluttum við sjálf til Montgomery,“ segir Jónína.

„Mamma var mjög spennt fyrir þessu og ég held að flest gömul mál hafi þá verið komin til grafar. Við vorum orðin fullorðin og réðum okkur sjálf. Pabbi var hins vegar mjög stressaður í fyrsta skipti sem amma kom út til okkar því hún var kona sem fyrirgaf seint. En það fór allt mjög vel. Eftir að við fluttum heim komu pabbi og konan hans hingað í heimsókn og það gekk líka mjög vel.“

Börnin með tvöfalt ríkisfang en ekki hún

Jónína og eiginmaður hennar bjuggu í Bandaríkjunum í 14 ár og fluttu aftur til Íslands árið 1993. Við heimkomuna þurfti fjölskyldan að tilkynna sig hjá Hagstofunni. Þar kom ríkisfangsmálið aftur upp.

„Ég spurði: „En hvað með mig?“ og konan sagði að ég væri það örugglega líka. Svo fékk ég bréf í póstinum þar sem kom fram að svo væri ekki. Ég geymdi því miður ekki bréfið og man ekki nákvæmlega hvernig þetta var orðað. Ég man að það stóð eitthvað um fæðingarár og hverjir væru með tvöfalt ríkisfang. Mér fannst þetta bara svo fíflalegt.“

Ísland heimilaði almennt tvöfalt ríkisfang 1. júlí 2003. Á Ísland.is kemur fram að einstaklingur sem missti íslenskt ríkisfang við töku erlends ríkisfangs fyrir þann tíma geti, að uppfylltum skilyrðum, óskað eftir endurveitingu.

Þegar Jónína var sautján ára og ætlaði í ferð til Noregs komst hún að því að hún gat ekki fengið íslenskt vegabréf eins og hún hafði gert ráð fyrir.Vísir/Anton Brink

Jónína lét málið þó áfram liggja. Það breyttist árið 2017 þegar hún fór að lenda í vandræðum við heimkomu eftir utanlandsferðir og var ítrekað spurð hvort hún væri með leyfi.

„Ég spurði: „Leyfi fyrir hverju?“ Þá var mér sagt: „Til þess að vera á Íslandi.“ Ég svaraði: „Ég er fædd hérna á Íslandi.“ Þá var ég spurð hvort ég ætti íslenskt vegabréf og ég sagði nei. Í kjölfarið hafði ég samband við Útlendingastofnun og spurði einfaldlega: „Af hverju er ég ekki íslenskur ríkisborgari?“ Það ýtti við mér að fara loksins almennilega af stað með þetta mál. Ég hugsaði bara: „Ókei, ég tek þetta svo ég hafi tíma til að koma málunum mínum í gang og geti haldið áfram með lífið.“ Það endaði á því að ég fékk dvalarleyfi en það var til fimm ára í senn og háð hjúskap. Ég þurfti alltaf að fara og endurnýja það. Ef ég og maðurinn minn hefðum skilið þá hefði ég líklega ekkert afturkvæmt á Íslandi. Næsta ár hefði ég þurft að fara í gegnum þetta aftur.“

„Hver er formúlan?“

Í febrúar 2025 sótti Jónína um íslenskan ríkisborgararétt til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Hún var ekki meðal þeirra 50 einstaklinga sem Alþingi samþykkti að veita ríkisborgararétt 14. júlí sama ár.

Á meðal þeirra voru átta íþróttamenn, sjö körfuboltamenn og einn handboltamaður.

„Ég las svarið eiginlega þannig að ég væri ekki landsliðsefni. Þá fór ég að velta þessu fyrir mér: Hvað hafa þeir sem fá ríkisborgararétt fram yfir mig sem er fædd á Íslandi, á íslenska móður og gekk alla mína grunnskólagöngu hér? Hver er formúlan? Fólk áttar sig ekki alltaf á því hvað það skiptir mig miklu máli að hafa íslenskan ríkisborgararétt. Ég tel mig vera íslenska, ég hafði bara ekki pappír yfir það. Þegar ég bjó í Bandaríkjunum og fór til Íslands var ég alltaf að fara heim í heimsókn,“ sagði Jónína í samtali við RÚV á sínum tíma.

Málið vakti athygli eftir umfjöllun RÚV. Í samtali við Mannlíf nokkrum dögum síðar kvaðst Jónína hafa fengið mikinn stuðning frá almenningi en engin viðbrögð frá stjórnvöldum. Hún tók jafnframt fram að lögfræðiaðstoð væri kostnaðarsöm og að henni fyndist hún ekki eiga að þurfa lögfræðing til að fá úr því skorið hver staða hennar væri.

Fingraför til FBI

Jónína hélt málinu áfram og fékk Vigdísi Ó. Hässler lögfræðing til liðs við sig. Sótt var um ríkisborgararétt hjá Útlendingastofnun eftir almennri leið og þurfti Jónína að leggja fram umfangsmikil gögn.

„Ég vil ekki vera of neikvæð því margt af fólkinu þarna vildi hjálpa. En þetta varð mikið mál að berjast fyrir. Ég þurfti að fara í fingrafaratöku, senda fingraförin til FBI og fá sakavottorð þaðan. Allt þetta þurfti ég að gera til þess að öðlast ríkisborgararétt. Þetta fannst mér með ólíkindum. En maður gerði auðvitað bara það sem þurfti.“

„Þegar maður las um endurveitinguna virtist þetta eiga að vera mjög einfalt mál. Frænka vinkonu minnar, sem er lögfræðingur hjá Útlendingastofnun en ekki í ríkisborgaradeildinni, kannaði þetta og fékk þau skilaboð að þetta væri besta leiðin. Ég óskaði því eftir því að umsóknin yrði færð yfir en fékk nei. Ég fékk engin greinileg rök fyrir því hvers vegna það væri ekki hægt. Seinna sendi lögfræðingurinn minn sjálf inn beiðni um endurveitingu.“

„Við fylltum allt út svo þau gætu ekki komið aftur og beðið um fleiri upplýsingar. Samt kom svo fyrirspurn um hvernig ég hefði orðið bandarískur ríkisborgari. Ég sendi Vigdísi skilaboð og sagði í raun: „En þið sögðuð mér sjálf að ég væri bandarískur ríkisborgari út af þessu.“ Það var hægt að leysa það með samskiptum innanhúss og ég þurfti ekkert að gera. En svona var þetta endalaust. Það kom alltaf eitthvað nýtt.“

Loksins íslenskur ríkisborgari

Þann 23. september kom loks símtalið sem Jónína hafði beðið eftir. Hún var í vinnunni í Hlíðasmára þegar Vigdís hafði samband og tilkynnti henni að hún hefði fengið íslenskan ríkisborgararétt.

„Ég varð svo stressuð að ég vissi eiginlega ekki hvað ég átti að segja. Það tók eiginlega heilan dag að átta sig á þessu. Ég var svo fljót á mér að ég labbaði strax til sýslumanns og ætlaði að sækja um vegabréf. Þá var kerfið ekki einu sinni búið að uppfæra sig og ég var enn ekki íslenskur ríkisborgari í þeirra bókum. Ég var svo bara grátandi inn á milli allan daginn þegar ég hugsaði um þetta. Þetta var svona „closure“, eins og að geta loksins lokað þessum kafla.“

Árið 2025 reyndi Jónína að fá ríkisborgararétt í gegnum Alþingi en var ekki meðal þeirra sem fengu samþykki. Vísir/Anton Brink

Fyrir Jónínu snýst ríkisborgararétturinn ekki aðeins um vegabréf eða skráningu í opinberu kerfi. Árin án hans höfðu einnig áhrif á réttindi hennar. Erlendir ríkisborgarar geta að uppfylltum skilyrðum kosið í sveitarstjórnarkosningum en kosningaréttur til Alþingis, forseta og í þjóðaratkvæðagreiðslum er almennt bundinn íslenskum ríkisborgararétti.

„Ég hefði gjarnan viljað vera komin með þetta fyrr, til dæmis þegar forsetakosningar voru. Ég mátti kjósa í sveitarstjórnarkosningum en ekki til Alþingis eða forseta. Það eru alls konar svona hlutir sem maður hugsar kannski ekki mikið út í. Við höfum líka oft hugsað um hvað Íslendingar fara mikið til Spánar og geta einfaldlega farið þangað og verið. Ég gat það ekki með sama hætti. Þetta eru gríðarleg forréttindi og þetta er bara eitthvað sem ég átti að hafa.“

#fæddist #til #áratugi #íslandi #þurfti


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262943803d/faeddist-a-islandi-en-thurfti-aratugi-til-ad-fa-thad-stadfest

📰 Aðrar fréttir

Rubio ræðir öryggis- og efnahagsmál á fundum með hérlendum ráðamönnum í dag
📅 05.10.2026 👁️ 0
Rubio ræðir öryggis- og efnahagsmál á fundum með hérlendum ráðamönnum í dag
Bandaríski utanríkisráðherrann Marco Rubio er væntanlegur hingað til lands í dag til að ræða við ráðamenn um samvinnu á sviði efnahags- og öryggismála...
Hvorki Lula né Bolsonaro tókst að tryggja sér meirihluta og því þarf að kjósa að nýju
📅 05.10.2026 👁️ 2
Hvorki Lula né Bolsonaro tókst að tryggja sér meirihluta og því þarf að kjósa að nýju
Yfirkjörstjórn í Brasilíu hefur staðfest að efnt verður til síðari umferðar forsetakosninga sunnudaginn 25. október. Hægrimaðurinn Flávio Bolsonaro, f...
Trump unveils 'Super Intelligence Force' to oversee AI policy
📅 05.10.2026 👁️ 0
Trump unveils 'Super Intelligence Force' to oversee AI policy
The president named his national intelligence chief as the taskforce's head as worries over AI grow.
„Langvarandi martröð“ barna í Líbanon
📅 05.10.2026 👁️ 2
„Langvarandi martröð“ barna í Líbanon
„Langvarandi martröð“ er heiti nýrrar skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna um stöðu barna í Líbanon. Samkvæmt henni hefur Ísraelsher drepið eða sær...
Skorað á formann og framkvæmdastjórn SÁÁ að segja af sér
📅 05.10.2026 👁️ 2
Skorað á formann og framkvæmdastjórn SÁÁ að segja af sér
Nokkur fjöldi fólks hefur þegar undirritað áskorun til Önnu Hildar Guðmundsdóttur formanns og framkvæmdastjórnar SÁÁ um að segja af sér. Undirskriftal...
Minnst tveir myrtir í skotárás á götuhátíð
📅 04.10.2026 👁️ 2
Minnst tveir myrtir í skotárás á götuhátíð
Að minnsta kosti tveir voru myrtir og tugir særðust í skotárás á fjölmennri götuhátíð í borginni Vienna í bandaríska ríkinu Georgíu. Fréttamiðlar í bo...
At­hafna­maður sagður hand­tekinn í Leifs­stöð - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
At­hafna­maður sagður hand­tekinn í Leifs­stöð - Vísir
Ríkisútvarpið greinir frá því að maðurinn sé grunaður um tengsl við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál sem fjallað hefur verið um en þar voru sautj...
Ekki öll nótt úti um kaup Ása á Opnum kerfum og Öryggismiðstöðinni
📅 04.10.2026 👁️ 4
Ekki öll nótt úti um kaup Ása á Opnum kerfum og Öryggismiðstöðinni
Ásum, móðurfélagi Símans, hefur borist tilkynning frá Samkeppniseftirlitinu um að hefja megi viðræður um mögulega sátt vegna kaupa félagsins á Öryggis...
Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyra­gættinni - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 4
Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyra­gættinni - Vísir
Lögreglumaðurinn, hinn 38 ára Eddie Duran, var sýknaður á fimmtudag. Þann 3. maí 2024 bankaði Duran á dyr íbúðar Forston í Okaloosa-sýslu í Flórída ef...
Athafnamaður handtekinn í Leifsstöð vegna rannsóknar á fíkniefna- og peningaþvættismáli
📅 04.10.2026 👁️ 3
Athafnamaður handtekinn í Leifsstöð vegna rannsóknar á fíkniefna- og peningaþvættismáli
Lögregla handtók á níunda tímanum í kvöld íslenskan athafnamann á sextugsaldri í Leifsstöð við komuna frá Lissabon í Portúgal. Hann er grunaður um ten...
Andrew Griffith to unveil Tory plans to cut taxes and regulations
📅 04.10.2026 👁️ 4
Andrew Griffith to unveil Tory plans to cut taxes and regulations
Shadow ministers will unveil a series of policies on day two of the Conservative Party conference in Birmingham.
Ágreiningur talinn liggja að baki morðinu í Halden
📅 04.10.2026 👁️ 3
Ágreiningur talinn liggja að baki morðinu í Halden
Lögregla í Noregi telur nú að ágreiningur hafi legið að baki skotárásinni í Halden í morgun, þar sem feðgar voru skotnir til bana og þriðji maðurinn s...
US removes all bombers from RAF Fairford back to home stations
📅 04.10.2026 👁️ 3
US removes all bombers from RAF Fairford back to home stations
A statement says all bombers deployed to RAF Fairford have been "re-deployed to their home stations" in the US.
Polls close in Brazil as Lula and Bolsonaro remain neck and neck
📅 04.10.2026 👁️ 4
Polls close in Brazil as Lula and Bolsonaro remain neck and neck
If no candidate gets more than 50% of the vote, the election will go to a run-off on 25 October.
Brazil election goes to run-off as right-wing Flávio Bolsonaro wins first round
📅 04.10.2026 👁️ 2
Brazil election goes to run-off as right-wing Flávio Bolsonaro wins first round
With neither candidate getting more than 50% of the vote, the election will go to a run-off on 25 October.
Protesters gather as migrants brought ashore at Gosport
📅 04.10.2026 👁️ 4
Protesters gather as migrants brought ashore at Gosport
A dinghy was believed to be carrying 120 migrants, according to French media.
Skóla­börn sáu nakinn hótelgest úr skóla­stofunni - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 4
Skóla­börn sáu nakinn hótelgest úr skóla­stofunni - Vísir
„[Hinn 8. september] varð það atvik í kennslustund hjá mér að nakinn fullorðinn maður var inni á hótelherbergi í beinni sjónlínu við kennslustofuna. N...
Loftvarnarflautur ómuðu í heimsókn Merz til Kyiv – Eykur fjárframlög til Úkraínu
📅 04.10.2026 👁️ 4
Loftvarnarflautur ómuðu í heimsókn Merz til Kyiv – Eykur fjárframlög til Úkraínu
Loftvarnarflautur tóku á móti þýska kanslaranum Friedrich Merz í óvæntri heimsókn hans til Kyiv í Úkraínu í dag. Þýskaland og Úkraína hafa undirritað ...
50+: Er ég að verða heyrnar­laus eða eru allir farnir að öskra? - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 5
50+: Er ég að verða heyrnar­laus eða eru allir farnir að öskra? - Vísir
En um leið og þú stígur inn á staðinn mætir þér veggur af hljóði. Þetta er ekki bara lágvært suð af fólki að njóta lífsins; þetta er sambland af bassa...
Margrét fær ekki að áfrýja til Landsréttar
📅 04.10.2026 👁️ 4
Margrét fær ekki að áfrýja til Landsréttar
Landsréttur hefur hafnað beiðni Margrétar Friðriksdóttur um áfrýjunarleyfi vegna dóms héraðsdóms þar sem hún var fundin sek um ærumeiðingar í garð Bar...
Ógnin frá Rússum eykst: fjárfesta í herskipum, kafbátum og öflugum vopnakerfum
📅 04.10.2026 👁️ 5
Ógnin frá Rússum eykst: fjárfesta í herskipum, kafbátum og öflugum vopnakerfum
Ný herskip, kafbátar og vopnakerfi eru á meðal stórtækra fjárfestinga Rússa á norðurslóðum.Wes Streeting varnarmálaráðherra Bretlands og Tore O. Sandv...
Við erum búin að markaðsvæða íþróttastarf barna
📅 04.10.2026 👁️ 5
Við erum búin að markaðsvæða íþróttastarf barna
Kostnaður við íþróttaiðkun barna getur hlaupið á hundruðum þúsunda á ári, samkvæmt nýrri úttekt ASÍ.Tugþúsunda munur getur verið á æfingagjöldum félag...
Íslenskir og ungir menn með íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku
📅 04.10.2026 👁️ 5
Íslenskir og ungir menn með íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku
Einn af hverjum þremur karlmönnum á aldrinum 18–24 ára er ósammála því að karlar og konur eigi að njóta jafnréttis. Þetta kemur fram í skýrslu um stöð...
Meiri­hlutinn sprakk eftir fjóra mánuði - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 5
Meiri­hlutinn sprakk eftir fjóra mánuði - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu en mbl.is greindi fyrst frá. Ekki liggur fyrir hvers vegna samstarfi flokkanna hefur verið slitið en hvorki hefur ná...
Meirihlutinn sprunginn í Suðurnesjabæ
📅 04.10.2026 👁️ 5
Meirihlutinn sprunginn í Suðurnesjabæ
Meirihluti D-listans, Sjálfstæðisflokks og óháðra, og S-listans, Samfylkingar og óháðra, í Suðurnesjabæ er fallinn. Þetta staðfestir Haraldur Helgason...
Hyggst ná öllu land­svæðinu af Hútum - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 5
Hyggst ná öllu land­svæðinu af Hútum - Vísir
Þetta gerist í framhaldi af átökum sem geisað hafa undanfarna daga á milli Húta, sem eru studdir af klerkastjórninni í Íran, og alþjóðlega viðurkenndr...
France to close up to 500 schools on Monday over student protests
📅 04.10.2026 👁️ 4
France to close up to 500 schools on Monday over student protests
Lessons will be "totally or partly suspended" in some high schools after clashes between riot police and student protesters, France's education minist...
New bid to save historic Fuerteventura house from demolition
📅 04.10.2026 👁️ 5
New bid to save historic Fuerteventura house from demolition
A new attempt has been launched to protect the Casa de la Cueva de la Negra in southern Fuerteventura from demolition, in the latest development in a ...
Mótmæli setja svip sinn á Frakkland: Íkveikjur, reiði og hundruð handtekin
📅 04.10.2026 👁️ 5
Mótmæli setja svip sinn á Frakkland: Íkveikjur, reiði og hundruð handtekin
Mótmæli setja svip sinn á Frakkland: Íkveikjur, reiði og hundruð handtekin Fréttin4. október 2026ErlentLeave a Comment Franska ríkisstjórnin á í erfið...
Auka næringarlæsi þjóðarinnar
📅 04.10.2026 👁️ 5
Auka næringarlæsi þjóðarinnar
Auka næringarlæsi þjóðarinnar Hjón­in Ingi Torfi Sverris­son og Linda Rakel Jóns­dótt­ir hafa gert ís­lenskt smá­for­rit sem hjálp­ar fólki að fylgj­a...
Framlengja gula viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
📅 04.10.2026 👁️ 5
Framlengja gula viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum hefur verið framlengd til klukkan átta í fyrramálið þegar staðan verður endurmetin. Martina ...
Sigmundur dregur stórar ályktanir um íslenska karla í efa: „Úr hvaða hópum voru þátttakendur Íslands eiginlega valdir?“
📅 04.10.2026 👁️ 5
Sigmundur dregur stórar ályktanir um íslenska karla í efa: „Úr hvaða hópum voru þátttakendur Íslands eiginlega valdir?“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gagnrýnir harðlega umræðu um nýja norræna rannsókn á viðhorfum karla. Jafnréttisstofa bendir sjálf á að íslenska úrtakið ...
Fjórir teknir á rauðu ljósi
📅 04.10.2026 👁️ 5
Fjórir teknir á rauðu ljósi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft í nægu að snúast við að hafa hendur í hári ökufanta. Ökumenn hafa verið stöðvaðir fyrir ýmis brot eins og hr...
Ekki eina leiðin til að upp­fylla skuld­bindingar Ís­lands - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 5
Ekki eina leiðin til að upp­fylla skuld­bindingar Ís­lands - Vísir
Bókun 35 var tekin fyrir af Maríu Rut Kristinsdóttur, þingmanni Viðreisnar, og Snorra Mássyni, þingmanni Miðflokksins á Sprengisandi í morgun. „Mér fi...
Móðir og kennari skilur ekkert í nýja námsmatinu – „Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur“
📅 04.10.2026 👁️ 4
Móðir og kennari skilur ekkert í nýja námsmatinu – „Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur“
Ásdís Björg Gestsdóttir, kennari og móðir drengs í 10. bekk grunnskóla, segir nýtt námsmat ekki gagnast við að veita foreldrum eða nemendum leiðsögn. ...
Ráðherra leggur til leigubremsu
📅 04.10.2026 👁️ 5
Ráðherra leggur til leigubremsu
Frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra til breytinga á húsaleigulögum felur í sér að svokallaðri leigubremsu verði komið á. Formaður Samtaka leigjen...
Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 5
Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI - Vísir
„Ég er sammála nýlegum brottförnum starfsmönnum um að fyrirtækin sem þróa þessa tækni sýni alls ekki nægilega aðgát. En ég tel að við þurfum að líta d...
„Hérna færðu leyfi til að hugsa um þig“
📅 04.10.2026 👁️ 5
„Hérna færðu leyfi til að hugsa um þig“
Nadía Gunnarsdóttir lenti ung í bílslysi og meiddist illa. Stoðkerfi hennar var í lamasessi og henni var tjáð að hún geti ekki eignast börn í framtíði...
„Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 5
„Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ - Vísir
Áform um breytingar á umferðarlögum voru kynnt í samráðsgátt í síðasta mánuði. Þar er meðal rætt að taka upp hlutlæga refsiábyrgð eigenda ökutækis veg...
Sambýlismaður Gypsy Rose Blanchard talinn hafa látist vegna of stórs fíkniefnaskammts
📅 04.10.2026 👁️ 4
Sambýlismaður Gypsy Rose Blanchard talinn hafa látist vegna of stórs fíkniefnaskammts
Ken Urker, barnsfaðir og sambýlismaður Gypsy Rose Blanchard, fannst látinn 1. október, á 34 ára afmælisdaginn sinn. Hann lætur eftir sig tveggja ára d...
Christa Pike's prognosis still unclear after failed execution, lawyer says
📅 04.10.2026 👁️ 5
Christa Pike's prognosis still unclear after failed execution, lawyer says
Pike's lawyer says doctors are still trying to clear two lethal doses of pentobarbital from her body.
Kántrýstjarna storkaði Robert Kraft í húsinu hans – „Frjáls Palestína“
📅 04.10.2026 👁️ 5
Kántrýstjarna storkaði Robert Kraft í húsinu hans – „Frjáls Palestína“
Kántrýstjarnan Zach Bryan ögraði milljarðamæringnum Robert Kraft með því að klæðast bol til stuðnings Palestínu á tónleikum á leikvangi í eigu hans. K...
Fólk láti reyna á hús­ráð áður en það leiti á yfir­fulla Læknavakt - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 5
Fólk láti reyna á hús­ráð áður en það leiti á yfir­fulla Læknavakt - Vísir
„Það er búið að vera mjög mikil veikindi og kannski óvenju snemma, fyrr á ferðinni heldur en við höfum oft séð,“ segir Stefán Ari Guðmundsson, framkvæ...
Sveitar­stjórnin flytur sig um set vegna myglu - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 4
Sveitar­stjórnin flytur sig um set vegna myglu - Vísir
Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð lagði flutningana til samkvæmt nýrri fundargerð frá fundi þess 1. október. Mbl greindi fyrst frá. Í fundargerðinni...
„Nýta prjónaskapinn til að ná þessari ró í hugann“
📅 04.10.2026 👁️ 5
„Nýta prjónaskapinn til að ná þessari ró í hugann“
„Ég nota þetta mikið sjálf til að ná mínum núllpunkti í hversdeginum. Þetta er endurtekin hreyfing. Eitthvað sem maður þarf virkilega að einbeita sér ...
Fyndnustu dýralífsmyndir ársins - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 5
Fyndnustu dýralífsmyndir ársins - Vísir
Eins og hvert einasta ár sem keppnin hefur verið haldin bárust fleiri myndir til hennar en nokkru sinni áður. Að þessu sinni voru þær rúmlega tíu þúsu...
Hringdi á neyðarlínuna til þess að sleppa við að borga fyrir humarinn
📅 04.10.2026 👁️ 5
Hringdi á neyðarlínuna til þess að sleppa við að borga fyrir humarinn
Maður þá þrítugsaldri í Georgíu fylki í Bandaríkjunum hefur verið ákærður fyrir að plata bæði heilbirgðisstarfsfólk og starfsfólk veitingastaðar. Þótt...
Mímir mætti í þjóðbúningi í þingið en gert var grín að honum – „Kyssið minn mjög svo norska rass!“
📅 04.10.2026 👁️ 5
Mímir mætti í þjóðbúningi í þingið en gert var grín að honum – „Kyssið minn mjög svo norska rass!“
Mímir Kristjánsson, hinn hálfíslenski þingmaður, mætti í þjóðbúningi á norska stórþingið. Sökuðu hægri menn hann um að hafa mætt í hrekkjavökubúning.„...
Green Party members back 'Zionism is racism' conference motion
📅 04.10.2026 👁️ 5
Green Party members back 'Zionism is racism' conference motion
The vote has caused divisions among figures at the top of the party at its conference in Brighton.
Röð skjálfta ekki á­hyggju­efni út af fyrir sig - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 5
Röð skjálfta ekki á­hyggju­efni út af fyrir sig - Vísir
„Árið 1968 var stór skjálfti á svæðinu, um sex að stærð, og svo aftur árið 1929, svipaðri stærð, sem fannst vel. Þannig að við erum svona að bíða efti...