Nú ættu aðdáendur Sound of Music eða Söngvaseiðs að gleðjast því glænýtt safn var opnað nýverið í Austurríki. Barnabarn hins raunverulega Georgs von Trapp, sjóliðsforingjans sem sagan byggist á, er einn leiðsögumanna á safninu.
„Ég er mjög hreykin af því. Föður mínum eru gerð skil
með hlutverki Kurt. Hann hét Werner von Trapp.
Svo að því sé haldið til haga,“ segir Elisabeth von Trapp.
Saga fjölskyldu hennar varð innblástur söngleiksins Söngvaseiðs sem kom svo út sem kvikmyndin goðsagnakennda með Julie Andrews í aðalhlutverki 1965.
Safnið er í borginni Salzburg. Það var opnað í september og verður opið til 1. nóvember.
Það verður svo opið frá mars fram í nóvember ár hvert. Safnið er það eina í heiminum sem segir bæði sögu kvikmyndarinnar og hinnar raunverulegu og söngelsku von Trapp-fjölskyldu.
„Aðdáendur sem koma til Salzburg vita ekki að Söngvaseiður
er sannsöguleg kvikmynd. Svo að ef þeir uppljómast skyndilega
og átta sig á að það var raunveruleg fjölskylda hér í Salzburg, sem nú býr í Bandaríkjunum eða úti um allan heim, þá höfum við náð markmiði
okkar að vissu leyti,“ segir Matthias Bergsmann, safnstjóri.