Í dag klukkan tvö verður opnað fyrir umferð um nýjan Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Á vef Vegagerðarinnar segir að opnun vegarins marki mikilvægan áfanga í framkvæmdunum sem búist er við að ljúki í kringum mánaðamót nóvember-desember.
Vegagerðin bendir á að vinna standi enn yfir og vegfarendur því beðnir að aka með gát og sýna tillitsemi enda líkur á einhverjum umferðartöfum. Um næstu mánaðamót stendur til að opna nýtt hringtorg við vegamót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar sem tengir nýjan og eldri hluta Arnarnesvegar.
Tvöföldun Breiðholtsbrautar þar sem hún mætir Vatnsendahvarfi verður einnig lokið um svipað leyti og þá verða allar akreinar opnaðar sem tengjast nýju brúnni yfir Breiðholtsbraut.
Sömuleiðis er unnið að ýmsum frágangi á borð við veglýsingu, undirgöng, malbikun göngu- og hjólastíga meðfram Arnarnesvegi og stækkun tjarnar sem tekur við ofanvatni af hinu stækkaða vegyfirborði.
Arnarnesvegur er hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Verkefnið er unnið í samstarfi Vegagerðarinnar, Betri samgangna, Reykjavíkurborgar og Kópavogs.Veitna og Mílu. Verktakar eru Loftorka og Suðurverk.