„Það sem við erum að gera er í sjálfu sér ekkert merkilegt en ferðamenn hafa eimitt áhuga á því sem okkur finnst hversdagslegt,“ segir Hrafnhildur Guðmundsdóttir, bóndi á Sturlureykjum í Borgarfirði.
Hún og maður hennar, Jóhannes Kristleifsson, taka á móti þúsundum ferðamanna á ári hverju á Sturlureykjum og fræða fólk um íslenska hestinn og daglegt líf á íslenskum sveitabæ.
„Okkar sérstaða er náttúrulega heita vatnið en hér var fyrsta hitaveita í Evrópu og fólk hefur mikinn áhuga á þeirri sögu. Síðan bökum við náttúrulega hverabrauð og leyfum fólki að smakka. Íslenski hesturinn er samt toppurinn og fólk fær að fara á bak og svo hafa líka mjög margir bara áhuga á að fá sjálfu með hesti.“