Íbúar á Þórshöfn með miklar áhyggjur eftir að dæmdur barnaníðingur flutti í bæinn
Foreldrar á Þórshöfn hafa lýst áhyggjum eftir að maður sem dæmdur var í ellefu ára fangelsi fyrir ítrekaðar nauðganir á dóttur sinni flutti í bæinn. Faðir í litlu samfélagi lýsir sömu stöðu í Facebook-hópnum Pabbatips og segir dóttur sína ganga daglega fram hjá húsi mannsins á leið í skólann.
Koma manns sem dæmdur var fyrir alvarleg og langvarandi kynferðisbrot gegn eigin dóttur til Þórshafnar hefur vakið áhyggjur meðal íbúa.
Viðmælandi Nútímans, sem óskaði eftir nafnleynd, segir mikla óánægju ríkja vegna komu mannsins og að foreldrar hafi áhyggjur af öryggi barna sinna. Hann segir að í litlu samfélagi, þar sem börn hafi hingað til getað farið frjáls um bæinn, hafi tilkoma mannsins haft áhrif á öryggistilfinningu fólks.
Maðurinn heitir Hlynur Ólafsson og var dæmdur í ellefu ára fangelsi í Noregi árið 2014 fyrir að hafa ítrekað nauðgað dóttur sinni.

Nauðgaði dóttur sinni í tíu ár
DV greindi frá dómi Hlyns í ágúst 2014. Samkvæmt umfjölluninni voru brotin framin á tíu ára tímabili, frá árinu 2002 til 2012. Dóttir hans var aðeins tíu ára þegar brotin hófust.
Í umfjöllun íslenskra fjölmiðla á sínum tíma, sem byggði á norskum heimildum, kom jafnframt fram að Hlynur hefði beitt eiginkonu sína og dóttur ítrekuðu ofbeldi og verið sagður hafa stjórnað heimilinu með ofbeldi um árabil.

Viðmælandi Nútímans segir foreldra sem búa í nágrenni við húsnæði Hlyns sérstaklega uggandi. Áhyggjurnar snúist fyrst og fremst um börnin og það frelsi sem þau hafi áður haft til að fara ein um bæinn.
Fullyrt að annar dæmdur nauðgari tengist húsnæðinu
Viðmælandi Nútímans fullyrðir að Vigfús Jóhannesson, fyrrverandi bocciaþjálfari á Akureyri sem sjálfur hlaut fangelsisdóm fyrir nauðgun, tengist húsnæðinu þar sem Hlynur dvelur.
Nútíminn kannaði eignarhald húsnæðisins til að sannreyna frásögn viðmælandans. Húsið er skráð í eigu einkahlutafélags og samkvæmt vottorði úr fyrirtækjaskrá er Vigfús Þorsteinn Jóhannesson skráður skoðunarmaður félagsins.

Þau gögn ein og sér staðfesta þó ekki að Vigfús sé eigandi félagsins eða að hann hafi sjálfur leigt Hlyni húsnæðið.
Vigfús var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra árið 2018 fyrir nauðgun á rúmlega tvítugri konu með þroskaskerðingu sem hafði æft boccia undir hans handleiðslu.
Samkvæmt umfjöllun um málið var Vigfús talinn hafa nýtt sér yfirburðastöðu sína gagnvart konunni og misnotað aðstöðu sína gróflega. Þá kom fram að hann hefði útvegað henni húsnæði og þannig tryggt sér aðgang að henni. Brotin áttu sér stað á árunum 2014 og 2015.
Óttast að ástandið geti magnast
Viðmælandi Nútímans segir mikla reiði ríkja meðal sumra íbúa vegna málsins og óttast að ástandið geti magnast.
Hann segist jafnframt hafa áhyggjur af því að einstaklingar kunni að taka málin í eigin hendur.
Nútíminn hefur engar upplýsingar um að slíkt hafi gerst eða að Hlyni hafi verið hótað.
Faðir leitar ráða á Pabbatips
Blaðamaður Nútímans rakst einnig á nafnlausa færslu í Facebook-hópnum Pabbatips þar sem faðir í litlu, um 300 manna samfélagi leitar ráða eftir að hafa komist að því að nýr nágranni hans hafi hlotið dóm fyrir nauðgun á eigin dóttur.
Lýsingin í færslunni samræmist í veigamiklum atriðum þeim upplýsingum sem Nútíminn hefur aflað um stöðuna á Þórshöfn.

Faðirinn segist eiga tvær dætur og að önnur þeirra gangi daglega fram hjá húsi mannsins á leið í skólann.
„Sjálfur á ég tvær stelpur og önnur þeirra labbar framhjá húsinu hans á hverjum degi til að fara í skólann.“
Hann lýsir stöðunni sem mjög óþægilegri og spyr aðra feður í hópnum:
„Hvernig vinnur maður með þetta?“
Færslan hefur vakið talsverð viðbrögð og í athugasemdum við hana hafa eldri fréttir um dóm Hlyns verið birtar ásamt nafni hans og mynd.
Ekki náðist í Hlyn
Nútíminn reyndi að ná tali af Hlyni við vinnslu fréttarinnar og gefa honum kost á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Ekki reyndist unnt að finna skráð símanúmer eða aðrar opinberar samskiptaupplýsingar hans og því tókst blaðamanni ekki að ná sambandi við hann fyrir birtingu fréttarinnar.