Fékk ekki að borða nema hún stundaði kyn­líf - Vísir

Fékk ekki að borða nema hún stundaði kyn­líf - Vísir

Fékk ekki að borða nema hún stundaði kyn­líf - Vísir

Jenný segir of erfitt þolendur ofbeldis að fá skilnað og sáttameðferð sé misnotuð til að nálgast þolendur og börn þeirra að nýju. Jenný segir auk þess þurfa að nota víðari skilgreiningu fyrir mansal og að í ofbeldismálum þar sem þolendur eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu sé það oft tilfellið. Í dag sé miðað við það hvernig lögregla skilgreini mansal en það sé miklu víðara. Sé málið þó ekki skilgreint þannig missi þolandi mögulega af ýmsum úrræðum og réttaraðstoð sem sé sérstaklega í boði fyrir þolendur mansals. 

Fjallað var um skuggamansal til dæmis í síðustu viku í Bítinu. Þar sagði Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður það mikið vandamál á Íslandi og úrræðaleysi stjórnvalda verulegt. Þar fjallaði hann sérstaklega um erlenda karlmenn sem misnota sér konur í viðkvæmri stöðu, eins og fatlaðar konur, og saggði þær útsettari fyrir slíku „skuggamansali“. Þeir plati konurnar til að giftast sér og jafnvel til að eignast börn með sér til að fá landvistarleyfi og hærri bótafjárhæð. Þeir beiti konurnar miklu ofbeldi og neiti svo að skilja við þær.

„Skelfilegast er þó þegar þessar konur eru þvingaðar til þess að verða óléttar í þeirri von og trú gerenda að barneignir muni auka möguleika þeirra á dvalarleyfi og tryggja þeim hærri bótagreiðslur frá hinu opinbera,” sagði Sævar um málið í aðsendri grein á Vísi í vikunni.

Halda konum í kynlífsmansali

Jenný segir slíkt mál hafa ratað á borð til þeirra í Bjarkarhlíð en svona mál séu alls ekki bundin við erlenda karlmenn. Íslenskir karlmenn misnoti konur í miklum mæli, íslenskar og erlendar, og það sé sérstakt vandamál þegar íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim svo í eins konar kynlífsmansali og beiti þær miklu ofbeldi. Slík mál séu stærri hluti þeirra mála sem rati á borð Bjarkarhlíðar en þau mál sem Sævar vísar til. Bæði séu þó verulega alvarleg.

„Í Bjarkarhlíð höfum við fengið mörg mál þar sem bæði erlendir og íslenskir karlmenn eru að hagnýta sér konur í viðkvæmri stöðu. Þar á meðal eru konur sem eru með þroskaraskanir og/eða aðrar andlegar og/eða líkamlegar fatlanir og við sjáum líka að þeir eru að fara inn á lokaðar Facebook-síður þar sem konur í viðkvæmri stöðu eru að leita til jafningjastuðnings,“ segir hún og að mennirnir séu þannig með einbeittan brotavilja gegn þessum hópi kvenna.

„Þeir eru virkilega að leita að þeim,“ segir hún og að konur í neyslu og í fátækt séu sérstaklega viðkvæmar fyrir slíku ofbeldi. Það sé yfirleitt sama aðferðin sem þessir erlendu menn noti. Þeir „love-bombi“ þær í byrjun og svo þegar þolandi er kominn á þeirra vald fá þeir hann til að giftast sér.

„Oft sjáum við að stjórnunin kemur rosalega fljótt og þeir eru farnir að beita andlegu, fjárhagslegu, kynferðislegu og líkamlegu ofbeldi og stundum kyrkingartökum og svo auðvitað eru þessar þvinguðu barneignir oft ein birtingarmynd þess sem margar þeirra verða fyrir.“

Jenný segir að í málum þar sem gerandi er af erlendum uppruna sé það aðferð til að styrkja betur umsóknir um dvalarleyfi og auka bótarétt á Íslandi, ef menn eru ekki með vinnu.

Vilja alls ekki skilja

„Það sem er vandamálið er að þegar gerendur eru erlendir einstaklingar utan EES hefur oft reynst erfitt fyrir þolendur að slíta sambandinu þar sem dvalar- og atvinnuleyfi gerandans er oft bundið því að hann sé maki íslensks ríkisborgara,“ segir hún og að þannig ógni skilnaður bókstaflega veru mannsins á Íslandi.

„Sem gerir hann auðvitað tregari í að fara og þetta skapar aukinn þrýsting og hættu fyrir þolendur. Þeir vilja bara alls ekki skilja og ætla ekki að skilja.“

Hún segir oft um að ræða einstaklinga sem eru frá löndum utan EES þar sem eru færri tækifæri, minni velmegun og færri tækifæri til menntunar.

„Það er oft rosalega mikið ofbeldi og ógnarstjórn í þessum málum og áhyggjur af velferð barna eru líka verulegar.“ 

Jenný segir að ef svo vilji til að konan komist á þann stað að hafa bakland og stuðning til að skilja við manninn og sé tilbúin að reyna það taki við kerfi sem bókstaflega ýti undir frekara ofbeldi.

„Þá er staðan sú að niðurstaða í forsjár- og umgengnismálum á Íslandi sem tryggir öryggi þolenda og barna næst afar sjaldan því að sterk jafnréttislöggjöf á Íslandi gerir almennt erfitt að skerða umgengni annars foreldris, jafnvel þegar annað foreldrið hefur greint frá ofbeldi,“ segir Jenný og að þessi niðurstaða endurspegli ekki þá almennu þekkingu að gerendur ofbeldis eigi oft erfitt með að setja þarfir annarra en þeirra sjálfra í fyrsta sæti og eigi þar af leiðandi oft erfitt með að mynda tengsl við börn sín.

Barnaverndarmáli lokað þegar það kemur til sýslumanns

Hún segir þetta mikið vandamál á Íslandi og að kerfin tali illa saman. Þegar mál séu komin á borð sýslumanns, til dæmis í lögskilnaðarferli, þá sé barnaverndarmáli lokað og það reynist þolendum oft afar erfitt.

Þannig sé lítill kerfislegur stuðningur við þolendur ofbeldis og lítið hægt að gera í stærstum hluta ofbeldismála á Íslandi. Jenný segir gerendur marga meðvitaða um þetta og misnota kerfið sér í hag. Það sé ekkert í kerfinu sem geri þeim að hemja hegðun sína og þær sjái, í Bjarkarhlíð, að þvert á móti aukist ofbeldið við það að kona leiti sér stuðnings.

„Gerendur eru náttúrulega líka þannig að ef einn þolandi losnar þá líður varla dagur þar til þeir eru komnir með annan. En þó svo að þeir fari í önnur sambönd þá er oft áframhaldandi ofbeldi eftir skilnað,“ segir hún og að sumir þolendur losni aldrei undan því.

„Þetta er nú nánast svo ævilöng afplánun með tilheyrandi álagi,“ segir hún og að afleiðingarnar séu verulega alvarlegar og telur upp brotthvarf á vinnumarkaði vegna álags, aukna örorku og aukna hættu á sjálfsvígi þolenda sem búa við þennan veruleika.

Jenný segir verða að endurkoða löggjöf og verklag í kringum sáttameðferð og lögskilnað. Vísir/Ívar Fannar

Jenný segir nauðsynlegt að stigið sé fastar inn í slík mál til þess að tryggja öryggi þolenda og gera gerendur að einhverju leyti ábyrgari fyrir gjörðum sínum.

„Við erum mjög léleg í því á Íslandi,“ segir hún og að þessi mansalsmál sem Sævar vísar til skarist að miklu leyti við heimilisofbeldismál sem hafi hingað til aðeins verið skoðuð þannig sem þýði að allur lagalegur og kerfislegur rammi um mansalsmál er ekki nýttur.

Málin ekki skoðuð sem mansal

„Við erum á svo miklum upphafsreit með öll mansalsmál á Íslandi að þessi mál og fullt af öðrum málum, með öðrum birtingarmyndum, það er ekki endilega verið að skoða þau sem mansalsmál.“

Hún segir fólk í hennar geira bíða í ofvæni eftir nýrri aðgerðaáætlun dómsmálaráðherra gegn mansali en áætlunin var sett í samráð í ágúst og september. Jenný segir þau sérstaklega bíða eftir því að skilgreiningin verði skoðuð. Lögreglan hafi hingað til verið skilgreiningaraðili í mansalsmálum en hún telur skilgreiningu þeirra ekki nægilega víða og valda því að stór hluti mála sé ekki skoðaður sem mansal. Það sé vitað að stór hluti til dæmis heimilisofbeldis- og kynferðisofbeldismála rati ekki á borð lögreglu eða sé vísað frá og það sama gildi um mansal.

„Það er ekki þar sem sagt að vegna þess að lögregla er ekki að rannsaka ofbeldi sé það ekki til staðar. Þannig að við erum líka í þessari klemmu að margar stofnanir í dag líta á lögregluna sem skilgreiningaraðila en hún getur ekki verið skilgreiningaraðili í mansalsmálum af því að það er ekki skylda að mansalsþolandi leiti til lögreglunnar. Hann þarf samt þjónustu.“

Jenný telur að þessi mál sem Sævar talar um séu algengari en flestir myndu halda. Þolendur upplifi mikla skömm eins og í ástarsvikamálum og séu oft lengi að átta sig á stöðu sinni og í vörn. Því geti málin verið langdregin og staðan alvarleg þegar þolendur svo leita sér aðstoðar.

„Það er bara þannig að eftir því sem þú ert í viðkvæmari stöðu í samfélaginu því færri tækifæri hefurðu til þess að leita þér aðstoðar. Ofbeldi sem íslenskir karlmenn beita konur með þroskaröskun og fatlanir, fátækar konur og konur í vímuefnaneyslu, það er bara galið.“

Hún segir ákveðna hópa karlmanna hafa verulega hagsmuni af því að misnota þessa viðkvæmu hópa kvenna og það eigi til dæmis við um þessa erlendu menn sem koma hingað í þeirri von að fá að dvelja hér en eiga erfitt með það vegna uppruna síns, sérstaklega þeir sem koma frá löndum utan EES. Það sé mikið undir hjá þeim og því séu viðbrögðin afar sterk þegar þolendur reyna að losa sig undan sambandi við þá.

„Svo bara gleymist líka umræðan um allar konurnar sem eru fluttar hingað inn og eru kynlífsþrælar heima hjá sér,“ segir Jenný og vísar til fréttar í vikunni um erlenda konu sem vísað var úr landi eftir að hafa skilið við íslenskan eiginmann sinn sem beitti hana margvíslegu og alvarlegu ofbeldi.

„Þetta er kona sem er að flýja heimilisofbeldi og út af því að hún er búin að vera svo stutt á landinu þá er henni vísað á brott,“ segir Jenný og það sé sérstakt vandamál að íslenskir menn sæki konur frá löndum utan EES og beiti þær miklu ofbeldi.

Konurnar viti til dæmis að ef þær dvelja á landinu í fjögur ár á tímabundnu leyfi sé það grundvöllur þess að fá ótímabundið dvalarleyfi.

„Þær eru að reyna að þreyja þorrann í þessi fjögur ár, að þær haldi lífi og einhverri heilsu, vegna þess að þær vita að ef þær fara verða þær sendar á brott þrátt fyrir að það sé til lagagrein sem á að tryggja þær að þær eigi að geta sótt um skilnað á þeirri forsendu að þær hafi verið í ofbeldissambandi,“ segir Jenný.

Hún viti af konum sem hafi ekki haldið út lengur en í þrjá mánuði vegna ofbeldisins sem þær hafa verið beittar eftir komu.

„Það er búið að flytja þær hingað inn, búið að beita þær gríðarlegu ofbeldi, sumar hafa þurft á læknisaðgerðum að halda og svo er þeim brottvísað. Geturðu ímyndað þér bara hvað það gerir fyrir sjálfsmynd einstaklings að lenda í þessu öllu saman?“

Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf

Jenný segir mörg alvarleg dæmi.

„Ég veit um dæmi þess að kona fékk ekki að borða nema hún myndi stunda kynlífsathafnir. Matarafgöngunum var hent svo að hún gæti örugglega ekki borðað neitt. Hann stýrði öllu og þetta var bara bráðíslenskur maður.“

Jenný segir þannig að þó svo að hún taki undir með Sævari að það sé alvarlegt mál að erlendir menn séu að misnota konur í viðkvæmri stöðu á Íslandi megi ekki gleyma því að það sé nóg af íslenskum gerendum á Íslandi.

„Erlendir gerendur eru ekkert meira vandamál heldur en íslenskir gerendur. Allt sem þú lest um byrlanir, lyfjagjafir og nauðganir. Við eigum svo mikið af íslenskum gerendum sem eru að gera þetta allt saman.“

Hún ítrekar þó að þegar gerandi er af erlendum uppruna og konur búnar að bindast þeim með hjónabandi eða barneign, bæti það auknu flækjustigi við málin.

„Hvort sem það er heimilisofbeldi eða mansal, það er alltaf flóknara þegar gerandinn er frá landi utan EES. Hann notar þetta sem aðferð: „Ég kom hingað fyrir þig. Ég er bara að fórna öllu fyrir þig. Ég fæ ekki vinnu, hér eru fordómar. Þú átt að vorkenna mér og hjálpa mér.“

Hún segir erfitt að koma þeim af heimilinu því þeir fái ekki atvinnu eða tekjur.

„Þetta er vandamál sem mjög margar íslenskar konur upplifa,“ segir Jenný og að þessi rök þekkist líka hjá íslenskum mönnum.

„Það liggur við að ef þú ert gerandi og þú kemur frá Vestmannaeyjum þá ertu farin að tala á þennan hátt.“

Jenný segist sjá miklu fleiri vandamál þar sem íslenskir karlmenn eru að flytja inn konur utan EES og misnota þær bæði kynferðislega og beita miklu ofbeldi innan þess sambands og að það sé miklu stærri partur þeirrar vinnu sem þær sinna hjá Bjarkarhlíð en það sem Sævar nefnir.

Draga meðferðina hjá sýslumanni

Hún segir almennt mjög erfitt fyrir þolendur ofbeldis að skilja og að sem dæmi séu fjár- og eignaskipti „eitt mesta helvíti“ sem þolendur gangi í gegnum.

Gerendur hafi tök á að draga það og koma í veg fyrir að formleg skipti fari fram með töfum. Fái konan skilnað og skipti og jafnvel forsjá með meðlagi misnoti þeir sér það.

„Nú eru allir skólar landsins byrjaðir og margir krakkar skráðir í fimleika, fótbolta og aðrar tómstundir. Þessir menn nýta sér það að ef mamma fær meðlag þá borga þeir ekkert aukalega. En þegar það þarf að fótboltagalla fyrir tvö, þrjú börn og mamma leitar til pabba því hún hefur ekki efni á því, þá heimtar hann kynlíf í staðinn. Þannig helst þessi stjórnun og þetta ofbeldi áfram jafnvel áratugum eftir skilnað.“

Jenný segir að í skilnaðarferli geti það þannig virkað gegn konum að greina frá því ofbeldi sem þær hafa verið beittar því það er þá notað gegn þeim.

„Þar er þessi ríka jafnréttislöggjöf sem að er til trafala,“ segir hún og að það sé ekki eðlilegt að menn sem komi úr fangelsi geti farið beint í það að opna nýtt umgengnismál. Það sé ein leið til að hafa taumhald á fyrrverandi maka.

Ekki sáttameðferð í ofbeldismálum

Hún segir sem dæmi mál þar sem sakfellt var fyrir kynferðislegt ofbeldi í héraði en því svo snúið við í Landsrétti. Konan hafi verið með fulla forsjá um árabil en maðurinn alltaf að opna það að nýju. Í eitt skipti hafi hann svo fengið umgengni undir eftirliti og í einni slíkri heimsókn hafi hann spurt barnið hvar það búi með móður sinni.

„Hún var búin að vera með falið heimilisfang í langan tíma. Í umgengninni, undir eftirliti hjá sýslumanni, þá spyr hann barnið: „Hvar búið þið núna?“ Barnið svarar og sýslumaður lætur hana ekki einu sinni vita að hann sé kominn með heimilisfangið. Svo birtist hann bara tveimur sólarhringum síðar á hurðinni hjá henni. Svona vel erum við að taka á heimilisofbeldismálum á Íslandi.“

Jenný segir áríðandi að því sé breytt í til dæmis sáttameðferð hjá sýslumanni að mál fari þangað sé greint frá ofbeldi í sambandi. Þolendur ættu ekki að þurfa að þola það.

„Þá þarf að gera áhættumat á þessum meinta geranda,“ segir hún og þannig ætti við þessi tilefni að taka málin til hliðar og vinna þau öðruvísi og sérstaklega taka mið af þeim afleiðingum sem það getur haft fyrir bæði konuna og börnin í þessum aðstæðum að halda umgengni áfram.

„Það er ekkert barn sem verður ekki fyrir afleiðingum ofbeldis sem býr á heimilinu þar sem er ofbeldi. Við skulum alveg átta okkur á því. Gerendur hafa yfirleitt ekki burði til þess að setja aðra en sjálfa sig í fyrsta sæti,“ segir hún og að tengsl þessara barna við föður verði oft óörugg. Hún sjái svo reglulega þessi börn endurtaka ofbeldiskeðjuna og þannig séum við alltaf að glíma við sama vandamálið.

Þarf annan farveg

„Það þarf að breyta sáttameðferðinni af því að það er einhver sem flaggar ofbeldi. Þá þarf málið að fara í einhvern annan farveg og það þarf að gera áhættumat á þessum gerendum.“

„Það er þvílíka áreitið og hérna, og ónæðið af þessum mönnum allan sólarhringinn. Þrátt fyrir að hafa náð fram lögskilnaði, fjár- og eignaskiptasamningi og umgengnissamningi eru þær settar í þá stöðu að vera beygðar undir það að vera beittar ofbeldi endalaust áfram,“ segir hún og að sérstaklega þegar börnin eru ung sjái þessar konur ekki fram á að geta fengið frið til að halda áfram með líf sitt árum saman.

#borða #ekki #fékk #hún #nema


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262942910d/fekk-ekki-ad-borda-nema-hun-stundadi-kynlif

📰 Aðrar fréttir

Feðgin tekin af ICE á leið í skírn - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 1
Feðgin tekin af ICE á leið í skírn - Vísir
Þetta hefur fréttaveitan AP eftir lögmanni þeirra en handtakan átti sér stað í gær. Aðrir farþegar sem voru að ganga um borð í vél Alaska Airlines á S...
Katrín Tanja á von á öðru barni - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 0
Katrín Tanja á von á öðru barni - Vísir
„Önnur lítil blessun verður hluti af fjölskyldunni í maí og við gætum ekki verið spenntari,“ skrifa hjónin í sameiginlegri samfélagsmiðlafærslu. View ...
Sigga Ósk etur kappi við fegurstu fljóð heims - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 1
Sigga Ósk etur kappi við fegurstu fljóð heims - Vísir
Þetta er 75. keppnin undir nafninu Miss Universe og er hún haldin í José Miguel Agrelot-íþróttahöllinni í San Juan. Þjóðbúningasýningin var haldin í g...
Árás á rússneskt herskip í líbískri höfn
📅 22.11.2026 👁️ 0
Árás á rússneskt herskip í líbískri höfn
Sprengingar urðu um borð í rússnesku skipi í sjóherstöð í Benghazi í Líbíu í morgun. Yfirvöld í austurhluta landsins, sem kalla sig Ríkisstjórn þjóðar...
Silja krefst þess að hjólabúar fái rafmagnið aftur eftir eldsvoðann í dag - Meirihlutinn ítrekað varaður við hættunni
📅 22.11.2026 👁️ 1
Silja krefst þess að hjólabúar fái rafmagnið aftur eftir eldsvoðann í dag - Meirihlutinn ítrekað varaður við hættunni
Silja Sóley Birgisdóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, krefst þess að hjólabúar á Sævarhöfða fái aftur rafmagn. Meirihlutinn í borginni hafi ít...
Burnham to tell MPs 'landmark' EU deal could make next decade 'much better'
📅 22.11.2026 👁️ 1
Burnham to tell MPs 'landmark' EU deal could make next decade 'much better'
The prime minister will tell MPs the deal agreed on Friday is a "choice between a broken status quo or change".
Boy, 7, pulled from rubble hours after Russian strike in Ukraine, rescuers say
📅 22.11.2026 👁️ 1
Boy, 7, pulled from rubble hours after Russian strike in Ukraine, rescuers say
Six people are dead, with rescue efforts ongoing to find those still missing from the residential building.
Boy, 7, rescued from rubble hours after Russian strike in Ukraine, rescuers say
📅 22.11.2026 👁️ 0
Boy, 7, rescued from rubble hours after Russian strike in Ukraine, rescuers say
Six people are dead in the attack, with rescue efforts ongoing to find those still missing from the residential building.
Áheyrnarprufan sem misbauð Simon Cowell og þótti of djörf fyrir sjónvarpið- „Ég trúði varla eigin augum“
📅 22.11.2026 👁️ 2
Áheyrnarprufan sem misbauð Simon Cowell og þótti of djörf fyrir sjónvarpið- „Ég trúði varla eigin augum“
Simon Cowell, sem er hvað þekktur fyrir að vera harður og hvass dómari í hæfileikakeppnum í sjónvarpinu. Þrátt fyrir harða ímynd er þó hægt að ganga f...
Lögreglan á Austurlandi furðar sig á rólegheitunum - „Allir of uppteknir?“
📅 22.11.2026 👁️ 2
Lögreglan á Austurlandi furðar sig á rólegheitunum - „Allir of uppteknir?“
Það er rólegt að gera hjá lögreglunni á Austurlandi ef marka má Facebookfærslu þar sem má sjá mynd af lögreglumanni sem ypptir öxlum á auðri götu. Vel...
Rúss­nesku her­skipi sökkt í líbískri höfn - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 1
Rúss­nesku her­skipi sökkt í líbískri höfn - Vísir
Enginn er sagður slasaður samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins. Þar kemur fram að skipið hafi verið á leið aftur til Rússlands og hafi haft viðko...
Spennan yfir því óvænta það sem heillar
📅 22.11.2026 👁️ 2
Spennan yfir því óvænta það sem heillar
Virði innihalds jóladagatala er oft minna en verðið gefur til kynna. Neytendur gætu átt rétt á endurgreiðslu ef varan stendur ekki undir væntingum.Það...
Alíslensk, venjuleg húsmóðir fagnar fertugsafmæli
📅 22.11.2026 👁️ 2
Alíslensk, venjuleg húsmóðir fagnar fertugsafmæli
Kvikmyndin Stella í orlofi var frumsýnd 18. október 1986 og hefur æ síðan lifað góðu lífi meðal landsmanna.Fjöldi fólks fagnaði afmæli myndarinnar í S...
Áherslan að færast yfir í aðgerðir heima fyrir
📅 22.11.2026 👁️ 2
Áherslan að færast yfir í aðgerðir heima fyrir
Halldór Þorgeirsson, formaður loftslagsráðs, segir að minni þörf sé á samþykktum á COP31, þar sem áherslan sé að færast frá samstöðu ríkja yfir í aðge...
Democrats win largest House majority since 1992 after flipping North Carolina seat
📅 22.11.2026 👁️ 2
Democrats win largest House majority since 1992 after flipping North Carolina seat
Democrats have now won at least 258 seats in the midterms compared to Republicans, who hold at least 173 seats.
50+: Þegar maður fer að kjósa svefn fram yfir kyn­líf (og er al­veg sáttur við það) - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 3
50+: Þegar maður fer að kjósa svefn fram yfir kyn­líf (og er al­veg sáttur við það) - Vísir
Sko… það skal tekið fram strax í byrjun að þetta er ekki pistill um að fólk hætti að stunda kynlíf. Frekar að fólk breyti aðeins því sem áður tíðkaðis...
„Vinir mínir þekkja mig sem gaurinn sem elskar Ís­land“ - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 2
„Vinir mínir þekkja mig sem gaurinn sem elskar Ís­land“ - Vísir
„Ég hef eiginlega verið heltekinn af Íslandi síðan 2013. Það var þegar The Secret Life of Walter Mitty kom út. Hún er uppáhaldsmyndin mín og hefur ver...
Alexandra segir frá góðverkinu sem hún gleymdi aldrei þótt 10 ár séu liðin - „Hvernig í fjandanum ætlarðu að borga?“
📅 22.11.2026 👁️ 4
Alexandra segir frá góðverkinu sem hún gleymdi aldrei þótt 10 ár séu liðin - „Hvernig í fjandanum ætlarðu að borga?“
Fyrir 10 árum átti Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri og hafnarstjóri í Suðurnesjabæ, ekki krónu með gati en vildi samt gleðja vinkonu sem var að g...
Öflug eplaræktun í Ölfusi undir berum himni
📅 22.11.2026 👁️ 4
Öflug eplaræktun í Ölfusi undir berum himni
Garðplöntustöðin Nátthagi í Ölfusi er í eigu Ólafs Sturlu Njálssonar. Hann ræktar fjölbreyttar tegundir af trjám og runnum með góðum árangri og svo er...
Bókaspjall: Hörður Grímsson glímir við sjálfhverfan sjónvarpsmann
📅 22.11.2026 👁️ 3
Bókaspjall: Hörður Grímsson glímir við sjálfhverfan sjónvarpsmann
„Gleym mér ei“, nýjasta bók Stefáns Mána um rannsóknarlögreglumanninn Hörð Grímsson, er um margt óvenjulegt verk á ferli höfundar. Í bókinni horfist l...
Of snemmt að draga ályktanir um hver stóð að baki netárás
📅 22.11.2026 👁️ 3
Of snemmt að draga ályktanir um hver stóð að baki netárás
Flókið verður að komast til botns í því hver stóð að baki netárás á vefhýsingarfyrirtækið 1984 í liðinni viku, segir forstöðumaður CERT-ÍS. Málið sé á...
What's next after no deal at COP31 climate talks?
📅 22.11.2026 👁️ 4
What's next after no deal at COP31 climate talks?
The COP31 climate summit in Turkey has formally come to an end after countries failed to agree a deal.
Macaulay Culkin ver Michael Jackson: „Hann gerði mér aldrei neitt“
📅 22.11.2026 👁️ 4
Macaulay Culkin ver Michael Jackson: „Hann gerði mér aldrei neitt“
Macaulay Culkin ver Michael Jackson: „Hann gerði mér aldrei neitt“ Fréttin22. nóvember 2026Erlent, Fræga fólkiðLeave a Comment Leikarinn Macaulay Culk...
Óttast að konur festist í ofbeldissamböndum þegar framfærslukrafa hækkar
📅 22.11.2026 👁️ 3
Óttast að konur festist í ofbeldissamböndum þegar framfærslukrafa hækkar
Forstýra Kvennaathvarfsins óttast að nýtt framfærsluviðmið dómsmálaráðuneytisins fyrir umsækjendur dvalarleyfis og ríkisborgararétts geti orðið til þe...
„Ekki hlaupa í burtu, Ursula!“ – hörð gagnrýni á milljarðastuðning ESB við Úkraínu
📅 22.11.2026 👁️ 3
„Ekki hlaupa í burtu, Ursula!“ – hörð gagnrýni á milljarðastuðning ESB við Úkraínu
„Ekki hlaupa í burtu, Ursula!“ – hörð gagnrýni á milljarðastuðning ESB við Úkraínu Fréttin22. nóvember 2026Erlent, EvrópusambandiðLeave a Comment Mila...
Leysti eitt stærsta verkefni stærðfræðinnar með hjálp gervigreindar
📅 22.11.2026 👁️ 3
Leysti eitt stærsta verkefni stærðfræðinnar með hjálp gervigreindar
Stærðfræðingur á vegum gervigreindarfyrirtækisins Anthropic segist hafa leyst eitt stærsta verkefni stærðfræðinnar, Riemann-tilgátuna, með hjálp gervi...
COP31 climate talks fail to reach deal amid fossil fuel and money rows
📅 22.11.2026 👁️ 2
COP31 climate talks fail to reach deal amid fossil fuel and money rows
The talks fail to make breakthrough on tackling climate change after a row about mentioning fossil fuels.
Notaði gervi­greind til að leysa æva­forna stærðfræðitilgátu - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 4
Notaði gervi­greind til að leysa æva­forna stærðfræðitilgátu - Vísir
Riemann-tilgátan er ein frægasta óleysta ráðgáta í stærðfræði sem Bernhard Riemann setti fram árið 1859. Hún snýr að frumtölum, það er að segja heilum...
Segir árásina á 1984 ehf. hafa verið fyrirsjáanlega - „Fyrirsjáanleg af því að 1984 spurði engra spurninga“
📅 22.11.2026 👁️ 6
Segir árásina á 1984 ehf. hafa verið fyrirsjáanlega - „Fyrirsjáanleg af því að 1984 spurði engra spurninga“
Stjórnsýslufræðingurinn Haukur Arnþórsson telur að tölvuárás á hýsingarfyrirtækið 1984 ehf. hafi verið fyrirsjáanleg. Fyrirtækið hafi kallað það yfir ...
Björgunarsveitin Bára kölluð út þegar ær með tvö lömb lenti í sjálfheldu
📅 22.11.2026 👁️ 3
Björgunarsveitin Bára kölluð út þegar ær með tvö lömb lenti í sjálfheldu
Björgunarsveitin Bára á Djúpavogi var kölluð út í dag þegar ær með tvö lömb lenti í hálfsheldu í skúta við Einstigsfoss í Hamarsá í Hamarsdal suður af...
Ukrainians search for missing after Russia strikes Kyiv region
📅 22.11.2026 👁️ 4
Ukrainians search for missing after Russia strikes Kyiv region
The BBC's Sarah Rainsford reports from the scene of a collapsed residential building in Ukraine's Kyiv region.
Ferfættri fjöl­skyldu bjargað úr hellis­skúta - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 4
Ferfættri fjöl­skyldu bjargað úr hellis­skúta - Vísir
Rjúpnaveiðimenn höfðu gengið fram á ána í gær og látið vita af dvöl hennar ásamt lömbum sínum inn á dalnum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Lan...
Foktjón til­kynnt víða - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 5
Foktjón til­kynnt víða - Vísir
Auk þess að sinna foktilkynningum var lögregla einnig kölluð til í suðurborginni vegna umferðaróhapps. Bíl hafði verið ekið á mann á rafhlaupahjóli.  ...
Mánuðir fyrir í­trekað of­beldi gegn fyrr­verandi kærustu - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 4
Mánuðir fyrir í­trekað of­beldi gegn fyrr­verandi kærustu - Vísir
Karlmaðurinn var ákærður fyrir að hafa beitt fyrrverandi kærustu sína umfangsmiklu líkamlegu ofbeldi. Fyrsta atvikið átti sér stað 14. apríl 2024. Við...
Stillans fauk um koll og splundraðist - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 4
Stillans fauk um koll og splundraðist - Vísir
Að sögn nágranna hafði pallurinn verið við húsið í dágóðan tíma. Hann kom að brakinu snemma í morgun og lét nágranna sinn vita sem brást, að hans sögn...
Þrír látnir eftir að eldur kviknaði í sælgætisverksmiðju - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 5
Þrír látnir eftir að eldur kviknaði í sælgætisverksmiðju - Vísir
Slökkviliðsmenn voru enn að berjast við eldinn í dag. Sextíu manns eru sagðir hafa verið inni í byggingunni þegar eldurinn kviknaði og leita viðbragðs...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Heimurinn vill rafmagn – við eigum það
📅 22.11.2026 👁️ 4
Sigvaldi Einarsson skrifar: Heimurinn vill rafmagn – við eigum það
Ímyndaðu þér bónda sem selur alla mjólkina sína í tankbíl á lágmarksverði og kaupir svo ostinn dýrum dómum til baka. Þannig hefur Ísland oft farið með...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Samkennd og góðvild
📅 22.11.2026 👁️ 5
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Samkennd og góðvild
Hvernig byggjum við samfélag þar sem við getum treyst hvert öðru og enginn þarf að standa einn?Hvernig væri að lifa í samfélagi þar sem við gætum trey...
20.000 alvarlegar skráningar um ofbeldi og hótanir í norskum skólum
📅 22.11.2026 👁️ 5
20.000 alvarlegar skráningar um ofbeldi og hótanir í norskum skólum
Tuttugu þúsund fráviksskráningar um ofbeldi og hótanir í norskum grunnskólum hafa verið merktar alvarlegar eða mjög alvarlegar frá árinu 2020. Skránin...
Russell Brand's wife says she'll honour prison rules after message row
📅 22.11.2026 👁️ 6
Russell Brand's wife says she'll honour prison rules after message row
The wife of the disgraced comedian says she will stick to the "parameters", after reading out a message from her inmate husband.
Hundruð klukkustunda vinna við ný altarisklæði
📅 22.11.2026 👁️ 5
Hundruð klukkustunda vinna við ný altarisklæði
Fjögur ár eru síðan ákveðið var að endurnýja altarisklæði Borgarneskirkju.Kirkjan var vígð 1959 og þar hafa verið sömu altarisklæðin frá upphafi, klæð...
Mennta­mála­ráð­herra segir af sér vegna við­bragða við svindli - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 4
Mennta­mála­ráð­herra segir af sér vegna við­bragða við svindli - Vísir
Ráðherrann, Choi Kyo-jin, segist axla fulla ábyrgð á þeim aðgerðum sem hann ákvað að láta grípa til í þeirri von um að koma í veg fyrir að nemendur ný...
„Ekki gefast upp, Fram­sókn er enn mögu­leiki“ - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 4
„Ekki gefast upp, Fram­sókn er enn mögu­leiki“ - Vísir
Sjónum var auðvitað beint að liðhlaupi Ingvars Þóroddssonar sem yfirgaf Viðreisn og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Sem er bara mjög skiljanleg...
Lítill hag­vöxtur á­hyggju­efni og staðan verri en annars staðar - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 4
Lítill hag­vöxtur á­hyggju­efni og staðan verri en annars staðar - Vísir
Gunnar Haraldsson hagfræðingur og fyrrum formaður Fjármálaráðs segir greinileg samdráttarmerki í hagkerfinu. Fyrirséð hafi verið að staðan yrði svona....
Bera nær allt tapið af millifærslusvikum - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 5
Bera nær allt tapið af millifærslusvikum - Vísir
Þetta kom fram í skýrslu Seðlabankans nú í nóvember. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu segir oft erfitt að rekja peningana og ná ...
Rússneskt flutningaskip dregið út úr finnskri lögsögu
📅 22.11.2026 👁️ 4
Rússneskt flutningaskip dregið út úr finnskri lögsögu
Rússneska flutningaskipið Sparta II sem gerð var drónaárás á á Finnlandsflóa í gærmorgun, hefur verið tekið í tog. Til stendur að draga skipið í rússn...
Explosion on Russian ship at Libya port caused by suspected drone attack, officials say
📅 22.11.2026 👁️ 6
Explosion on Russian ship at Libya port caused by suspected drone attack, officials say
Libya's eastern government says it is working with Russia to investigate the incident.
Two children taken to hospital after car crash in Lanzarote
📅 22.11.2026 👁️ 4
Two children taken to hospital after car crash in Lanzarote
Two children were taken to hospital after a two-car crash near Tao, in the municipality of Teguise, yesterday, Saturday 21st November.Emergency servic...
Spectacular four-masted Star Clipper docks in Tenerife
📅 22.11.2026 👁️ 5
Spectacular four-masted Star Clipper docks in Tenerife
The spectacular Star Clipper sailing ship docked at the port of Santa Cruz de Tenerife yesterday, Saturday 21st November, before setting off on a two-...
COP31 lokið án sam­komu­lags - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 5
COP31 lokið án sam­komu­lags - Vísir
Öll ríkin greiddu atkvæði um fjórðu samningsdrögin í morgun en öll ríkin þurfa að samþykkja drögin svo þau verði að samkomulaginu. Svo reyndist ekki o...