Mestu rigningartíð sem heimildir eru til um í Tókýó, höfuðborg Japans, er lokið. Hún stóð í 37 daga, lengur en nokkru sinni fyrr, og úrkoman var þreföld á við það sem venja er til á þessum árstíma.
Íbúar í Tókýó höfðu ástæðu til að gleðjast um helgina. Sólríkir dagar tóku við af þeim gráu og blautu dögum sem hafa einkennt höfuðborgina síðan í lok ágúst.
Rigningin hófst 27. ágúst og stóð allt til 2. októbers. Það eru 37 dagar, lengsta samfellda rigningartíð í sögu borgarinnar síðan mælingar hófust 1886.
Alls féllu 696,5 millímetrar af rigningu á þessum rúmlega mánuði. Það er þreföld úrkoma á við það sem gerist í venjulegu árferði á þessum tíma.