Hálkan hefur snúið aftur og er ráðlegt fyrir bílstjóra að huga að henni á nokkrum vegum.
Hálkublettir og éljagangur eru á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Sömu sögu er að segja á Biskupshálsi, á Möðrudalsöræfum og á Fjarðarheiði.
Hálkublettir eru á Öxnadalsheiði, Vatnsskarði og Þverárfjalli sem og á Dettifossvegi.
Vegurinn um sunnanverðan Gilsfjörð er lokaður vegna skriðu sem féll á veginn. Vegurinn um Öldufellsleið er enn lokaður vegna vatnavaxta og veginum um Breiðdalsheiði verður lokað milli tíu og eitt vegna ræsaskipta. Enn eru vatnsskemmdir á veginum frá því í síðustu viku og vegfarendur hvattir til að fara varlega.