Mjög ánægð með flugið
Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú, athafnakona og samfélagsmiðlastjarna flaug með Icelandair á dögunum og fékk að kíkja í stjórnklefann. Hún var gríðarlega ánægð með flugið og sagði að þarna væru heimsins nettustu flugmenn og heitustu flugfreyjur og flugþjónarnir.
Njóta í New York
Vaka Njálsdóttir, vörumerkjastjóri Collab, og rapparinn Birnir njóta lífsins saman í fríi í New York.
Eþíópíu-ævintýri Evu Ruzu
Skemmtikrafturinn Eva Ruza átti ævintýraríka og gefandi ferð með SOS barnaþorpunum í Eþíópíu á dögunum.
Gift í fimm ár
Athafnakonan Friðrika Hjördís Geirsdóttir, betur þekkt sem Rikka, giftist ástinni sinni Kára Hallgrímssyni, fjárfesti og sjóðsstjóra, fyrir fimm árum á föstudag. „Lukka lífs míns að vera gift þessum í 5 ár,“ skrifaði Rikka undir fallega brúðkaupsmynd af þeim á Instagram.
Glæsileg Parísarpæja
Leikkonan og sunddrottningin Ragga Ragnars naut lífsins í París um helgina.
Nýtur lífsins óháð verðbólgunni
Raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime segir svakalegt að heyra með verðbólguna og olíuverðið en hann sé þó búinn að hafa rosalega gaman síðustu daga.
Sjálfu-stuð
Tónlistarkonan Kolfreyja Sól bogadóttir, betur þekkt sem Alaska, birti sjálfsmyndasyrpu á grammið. Hún var að gefa út plötuna 1867 og er á fullu að koma fram í tónlistarheiminum.
Afmæli tískudrottningar
Þóra Valdimarsdóttir, listrænn stjórnandi tískuhússins Rotate, fagnaði afmæli sínu í Kaupmannahöfn berleggja í pels.
Á tónlistarhátíð í New York
Það er alltaf stuð hjá Birni Boða Björnssyni sem er búsettur í New York. Hann er nýkominn heim frá Ibiza og skellti sér á tónlistarhátíð með vinum í New York.
Heit handboltadrottning
Handboltadrottningin Hafdís Renötudóttir var algjör skvísa þegar hún skellti sér út á lífið um helgina.
Skvís í Sviss
Áhrifavaldurinn og pílateskennarinn Alexandra Björgvinsdóttir er búsett í Sviss og nýtur lífsins þar til hins ítrasta. Um helgina skellti hún sér í tíu rétta kvöldverð og með því.
Alexandra ræddi við blaðamann um lífið í Sviss fyrr á árinu.
Bríet í Bandaríkjunum
Poppstjarnan Bríet er á tónleikaferðalagi um Bandaríkin þar sem hún hitar upp upp fyrir Daða Frey.
Leður fyrir Pussycat Dolls
Ofurskvísan Anna Björk Björgvinsdóttir hefur farið á fleiri tónleika en flestir og ferðast víðs vegar um heiminn til að berja stórstjörnur úr tónlistarheiminum augum. Hún skellti sér til Liverpool í Englandi til að sjá skvísusveitina Pussycat Dolls á sviði en þær voru einstaklega vinsælar rétt eftir aldamótin og eru með endurkomu um þessar mundir.
Með X-peng í Sviss
Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstýran Sunneva Einarsdóttir fór í skvísuferð til Sviss ásamt vinkonu sinni Hildi Sif Hauksdóttur á vegum X-Peng rafbíla.
Græneygð í gír
Eurovision-farinn Diljá Pétursdóttir var extra græneygð um helgina.
Asíureisa Gyðu
Gyða Dröfn, vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni, fer í ævintýraferð á hverju hausti. Fyrsta stopp í ár var Víetnam.
September-skvís
Dansarinn og áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir fer yfir góðar stundir í september.
Ástrós var viðmælandi í Vísisþættinum Einkalífinu árið 2024. Þáttinn má sjá í spilaranum hér að neðan: