Vísindamennirnir þrír fá verðlaunin fyrir uppgötvun sína á ljósstýrðri erfðatækni (e. optogenetics). Í tilkynningu nefndarinnar er því lýst sem aðferð sem gerir kleift að sýna hvernig taugafrumur móta minningar, tilfinningar og hegðun í heila.
„Peter Hegemann og Georg Nagel uppgötvuðu einstakt prótein, channelrhodopsin, í einfruma þörungi. Karl Deisseroth umbreytti próteininu í ljósstýrðan rofa fyrir taugafrumur. Verðlaunahafarnir hafa lagt grunninn að nýju tímabili í taugavísindum,“ segir í tilkynningunni.
Með því að nota þessa ljósstýrðu erfðatækni er hægt að afhjúpa taugarásir sem stjórna tilteknum minningum, tilfinningum og hegðun sem skipta máli fyrir tauga- og geðsjúkdóma. Í klínískum lækningum er hægt að nota aðferðina í tilraunum til að endurheimta sjón hjá fólki með sjónskerðingu.
Deisseroth er við Howard Hughes Medical Institute í Stanford-háskóla, Hegemann við Humboldt-háskólann í Berlín og Nagel við Wurzburg-háskólann í Þýskalandi.
Á síðasta ári fengu Mary E. Brunkow, Fred Ramsdell og Shimon Sakaguchi Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði fyrir uppgötvanir sínar varðandi útþol á sviði ónæmisrannsóknar.