Tveir erlendir ferðamenn á sjötugsaldri létust í slysinu sem varð rétt fyrir hádegi á Laugardag á þjóðvegi eitt á Jökuldalsheiði við Háreksstaðakvísl. Um var að ræða árekstur fjögurra bíla og voru samtals átta farþegar í bílunum. Tveir aðrir voru fluttir alvarlega slasaðir með sjúkraflugi til Reykjavíkur en samkvæmt heimildum fréttastofu eru þeir ekki lengur í lífshættu. Hinir fjórir farþegarnir voru færðir til aðhlynningar á Egilsstöðum.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu lauk rannsókn á vettvangi á laugardagskvöld og veitir hún ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, sjúkraflugvélar, björgunarsveitarmenn, lögregla, sjúkraliðar og Rauði krossinn tóku þátt í aðgerðum. Álfheiður Svana Kristjánsdóttir neyðarvarnarfulltrúi Rauða krossins segir viðbragðshópa hafa verið virkjaða á Austurlandi og Norðurlandi eystra.
„Viðbragðshópar Rauða krossins sinna sálrænum stuðningi og við komum svolítið að þegar aðgerðum á slysstað lýkur. Við bjóðum upp á sálrænan stuðning fyrir þá sem voru vitni að slysinu og í þessu tilfelli vorum við einnig að styðja við viðbragsaðila þegar þeir heim af vettvangi.“
Þannig hafi fólk sett sig í samband við Rauða krossinn á sunnudag og mánudag og Rauði krossinn veitt um tíu manns sálrænan stuðning sem hafi orðið vitni að slysinu eða komið að störfum á slysstað.
„Þeir sem eru vitni að svona erfiðum slysum þeir fá boð um sálrænan stuðning, ýmist er fólki boðið að koma eins og í þessu tilfelli var fólki boðið að koma á heilsugæslustöðina á Egilsstöðum en annars er fólki oft boðinn sálrænn stuðning seinna sama dag eða næstu daga á eftir og fólk getur þá haft samband við 1717 eða Rauða krossinn og óskað eftir sálrænum stuðning ef það hefur ekki fengið boð um slíkt.“