Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

Fyrrverandi forsetafrú Íslands, Dorrit Moussaieff, segir líf sitt hafa tekið miklum breytingum eftir að hún og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, fóru hvort í sína áttina eftir áralangt hjónaband.
Dorrit ræðir sambandsslitin í einlægu viðtali í hlaðvarpsþættinum Marta María býður heim. Þar fjallar hún meðal annars um árin með Ólafi Ragnari, lífið eftir forsetatíðina og framtíðina á Íslandi.
Dorrit segir erfitt að benda á ákveðinn tímapunkt þegar hjónabandið hafi byrjað að gliðna. Mikil kaflaskipti hafi þó orðið eftir árás Hamas á Ísrael 7. október 2023 og stríðið sem fylgdi.
Dorrit, sem er af gyðingaættum og ólst upp í Jerúsalem, segir atburðina hafa haft djúpstæð áhrif á sig. Hún hafi upplifað mikið áfall og orðið reið, skapstygg og óþolinmóð. Á sama tíma hafi hún þurft mikinn stuðning en átt erfitt með að veita Ólafi Ragnari þann stuðning sem hann þurfti.
Að lokum hafi orðið ljóst að þau sæktust ekki lengur eftir sömu hlutunum.
„Ég held að hann hafi viljað aðra hluti út úr lífinu en ég.“
Dorrit segir sig forvitna að eðlisfari og vilja stöðugt prófa nýja hluti og fara út fyrir þægindarammann. Þrátt fyrir sambandsslitin minnist hún hjónabandsins með hlýju og segir þau hafa átt margar góðar stundir saman.