Klukkan 17:30 í dag munu trúnaðarmenn og fulltrúar í samninganefndum Fagfélaganna hittast og greiða atkvæði um það hvort kjarasamningum skuli sagt upp. Á sama tíma munu trúnaðarráð VR og stjórn félagsins taka afstöðu til sama máls.
Jakob Tryggvason, formaður Rafiðnaðarsambandsins, sem er stærsta félagið innan Fagfélaganna, segir að samtalið við ríki og sveitarfélög hafi gengið vel síðustu daga. Aðra sögu sé að segja af Samtökum atvinnulífsins.
„Samningsaðilar okkar, Samtök atvinnulífsins, hafa algjörlega skilað auðu. Og bara að óbreyttu þá veit ég ekki hvernig við eigum að eiga möguleika á öðru heldur en að segja upp samningum nema þeir komi með eitthvað að borðinu.“
Samtök atvinnulífsins hafa sagt að launahækkanir, umfram þær sem samið var um í síðustu kjarasamningum, komi ekki til greina. Aðspurður hvað samtökin gætu komið með að borðinu annað en launahækkanir til að liðka fyrir samtalinu segir Jakob að það séu ýmsar leiðir til að vinna sig úr stöðunni.
„Það hefur ekki komið neitt frá þeim. Ef við hefðum eitthvað á borðinu til þess að vinna með þá væri örugglega hægt að finna einhverja lausn á þessu. Það er alveg örugglega hægt að finna einhvers staðar sameiginlega niðurstöðu ef Samtök atvinnulífsins opna á samtalið. Hingað til höfum við bara haft þá tilfinningu að þeir séu á einhverri annarri vegferð en að þessir kjarasamningar eiga að gilda áfram.“
Jakob segir að hljóðið í félagsmönnum sé þungt og telur að félagsmenn sjái þá eina leið færa að slíta samningum í kvöld.
Hvað heldur þú að gerist ef það verður niðurstaðan? Hvað heldur þú að gerist í kjölfarið? Heldurðu að það verði svona einhvers konar dómínóáhrif, heldurðu að önnur félög fylgi í kjölfarið?
„Augljóslega og bara innan okkar raða, við erum með mjög marga samninga. Þetta hefur áhrif á um 15 samninga innan Rafiðnaðarsambandsins og fleiri samninga innan fagfélaganna. Þetta virkjar uppsagnarákvæði í samningum við opinbera geirann líka, ríki og sveitarfélög, þannig að þetta hefur því miður mjög víðtæk áhrif.“