Hjónin vinna mikið saman en samhliða rekstri á Mikado eru þeir með veitingastaðinn Bari í Hafnarstræti. Það er ekki að undra að þessir menningarvitar hafi verið búsettir lengi í 101.
Íbúðin sem þeir eru að selja er á Bergþórugötu 59 og er um að ræða mikið endurnýjaða fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð.
Eignin er 105,8 fermetrar að stærð og ásett verð tæplega hundrað milljónir. Hér má nálgast nánari upplýsingar um hana.