Hlutabréf í Alvotech hafa hækkað um tæp sjö prósent í verði í dag.
Fyrirtækið tilkynnti í morgun að Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefði veitt fyrirtækinu viðauka við markaðsleyfi þess fyrir hliðstæðu við Humira-líftæknilyfið. Bætt hafði verið úr vanköntum og verður því hægt að tvöfalda framleiðsluna fyrir Bandaríkjamarkað.
Hækkunin á hlutabréfum Alvotech er sú langmesta í Kauphöllinni í dag. Næst koma hlutabréf í JBT Marel sem hafa hækkað um eitt og hálft prósent.