Kelly Carnes missti nýja framkvæmdastjórastarfið sitt hjá bandarísku listafélagi eftir að fléttur í hári hennar voru gagnrýndar og sagðar vera menningarnám. Carnes, sem er hvít, segir hárgreiðsluna hafa kostað sig starfið. Félagið brást við deilunni með því að boða hana á námskeið gegn kynþáttafordómum og breytingar á stefnu sinni um „menningarlega framsetningu og klæðaburð“.
Fyrirtækið er Baltimore Rock Opera Society, sem setur upp frumsamdar rokkóperur með þátttöku sjálfboðaliða. Carnes hóf störf 8. september og ráðningin var kynnt opinberlega sex dögum síðar. Félagið sagði hana hafa yfir 21 árs reynslu af listastarfi, stjórnun og rekstri félagasamtaka. Um tveimur vikum eftir að hún hóf störf hafði henni verið sagt upp.
Fléttaði hárið fyrir Burning Man
Í viðtali við Baltimore Banner segir Carnes að hún hafi látið flétta hárið fyrir Burning Man hátíðina í Nevada eyðimörkinni til að verjast vindi og ryki. Flétturnar nefnast cornrows á ensku og eru sagðar eiga rætur í afrískri menningu.
Hún mætti, enn með flétturnar, á fjáröflunarviðburð félagsins 10. september. Að hennar sögn gerði enginn þar athugasemd við hárið. Þegar myndband af henni birtist á samfélagsmiðlum fjórum dögum síðar komu hins vegar fram kvartanir um menningarnám sem urðu til þess að félagið fjarlægði myndbandið.
Boðuðu breytingar og þjálfun gegn kynþáttafordómum
Stjórn félagsins birti yfirlýsingu þar sem sérstaklega var tekið fram að nýi framkvæmdastjórinn væri hvítur og hefði borið flétturnar á opinberum viðburði félagsins.
Stjórnin boðaði breytingar á stefnu gegn mismunun til að taka skýrar á „menningarlegri framsetningu og klæðaburði“. Einnig yrði lögð áhersla á þjálfun stjórnenda gegn kynþáttafordómum og stofnaður vinnuhópur um menningu, aðkomu samfélagsins og kynþáttajafnrétti.
Fékk ekki að mæta á fundinn
Carnes segir að stjórn félagsins hafi sagt henni að mæta ekki á fundinn og skömmu eftir miðnætti sama dag hafi hún fengið uppsagnarbréfið. Þar hafi verið sagt að hún hentaði ekki starfinu, án þess að hárgreiðslan væri nefnd.
„Persónuleg skoðun einhvers á hárgreiðslu minni er eitt. Að taka ákvörðun um starf mitt út frá útliti mínu er annað,“ segir hún.
Félagið tilkynnti sjálfboðaliðum uppsögnina 23. september en hefur ekki svarað spurningum Baltimore Banner um ástæðuna. Carnes segist undrandi á að listafélag sem fagnar einstaklingsbundinni tjáningu og skapandi frelsi hafi brugðist svona við útliti hennar. Hún skoðar nú möguleikana á málaferlum með lögmanni sínum.