Árni Stefán Árnason skrifar:
Áður en ég kem að aðalefni þessara skrifa ætla ég að koma með stutt ágrip um 4. október ár hvert. Þá er, á heimsvísu, haldinn hátíðlegur Alþjóðlegur dagur dýranna, World Animal Day.
Hann var fyrst haldinn hátíðlegur af Heinrich Zimmermann 24. október 1925 í Sportpalast í Berlín í Þýskalandi og sóttu um 5.000 manns samkomuna.
Á Íslandi var hann fyrst haldinn hátíðlegur árið 2012 í Fríkirkjunni í Hafnarfirði að frumkvæði greinarhöfundar, sem hafði uppgötvað þennan merkilega dag nokkru áður og var um tíma ambassador World Animal Day á Íslandi.
Því má, með fullri sanngirni, halda fram að dagurinn sé mikilvægasta og um leið merkilegasta stoð dýraverndar á heimsmælikvarða. Aldrei sameinast heimurinn á sama tíma um jafn mikilvægt málefni og dýravernd er.
Dýravernd nær hámarki með verklegu framlagi til verndar dýrum, hvort sem þú týnir ánamaðk af heitu malbiki og setur í næstu mold, leyfir kónguló að spinna sinn vef eða reynir að koma í veg fyrir dráp á hvölum á stórvirku skipi með því að reyna að hindra oft á tíðum kvalarfullar hvalveiðar.
Allt er þetta verkleg dýravernd, frá hinum smæstu til hinna stærstu dýra, og í anda heilags Frans frá Assisi, verndardýrlings kaþólsku kirkjunnar sem dagurinn er tileinkaður.
Ekki er að finna orð um daginn frá æðsta valdi íslenskrar dýraverndar, atvinnuvegaráðherra, ekki yfirdýralækni, ekki frá neinum dýraverndarsamtökum, ekki einum einasta íslenskum fjölmiðli. Engin íslensk kirkja né nokkurt klaustur fjallaði um þetta.
Segir það okkur ekki margt um stöðuna á Íslandi?
Þýska pressan og margir aðrir evrópskir miðlar gera ítarlega grein fyrir þessum merka degi.
Til hamingju Magnús Kristjánsson, nýskipaður forstjóri Stofnunar atvinnuveganna – dýraverndin kallar!
Að ofangreindu sögðu vil ég byrja þessa grein á því að óska nýjum forstjóra Stofnunar atvinnuveganna (SA), Magnúsi Kristjánssyni, til hamingju með skipun sína.
Í skipun hans felst að Magnús verður æðsti framkvæmdavaldshafi, á eftir atvinnuvegaráðherra, á lögum um velferð dýra.
Ég læt mig þessa tilfærslu á framkvæmdavaldi laganna varða vegna þess að ég hef, ásamt tugum annarra dýraeigenda, á undanförnum misserum þurft að þola ofríki núverandi framkvæmdarvaldshafa, Matvælastofnunar (MAST).
Ofríki sem er langt umfram allt meðalhóf íslenskrar stjórnsýslu og stjórnsýslulaga og einkennist af afar óeðlilegum vinnubrögðum að mati þeirra sem fyrir verða.
Á meðal hlutverka hins nýja forstjóra
Til kasta hins nýja forstjóra kemur að skapa aga, frið, virðingu og jákvæðar væntingar í kringum framkvæmd laga um velferð dýra.
Á því hefur verið gríðarlegur misbrestur frá því að MAST tók við því kefli samkvæmt ákvörðun Steingríms J. Sigfússonar, þáverandi ráðherra, sem mælti fyrir frumvarpi laga um velferð dýra.
Steingrímur sagði úr ræðustól þingsins: „Héðan í frá verður enginn afsláttur gefinn af dýravernd“ og „framkvæmd laga verður hvergi betur fyrir komið en hjá sérfræðingum MAST“.
Allt reyndist rangt og fullyrða má að engin sérstök sérþekking sé á lögum um velferð dýra hjá MAST.
Því verður það léttir þegar framkvæmdavaldið fer þaðan á nýársdag 2027 og til Stofnunar atvinnuveganna. Ég ber þá von í brjósti að breyting verði á.
Það brást
Væntingar fyrrverandi ráðherra brugðust algerlega, eins og ég hafði spáð og skrifað um áður en lögin tóku gildi.
Frá þeim tíma hef ég fylgst með þessum málaflokki og unnið að fjölda mála fyrir hönd skjólstæðinga sem hafa lent í útistöðum við MAST.
Já, „útistöður“ er eina rétta lýsingarorðið, því MAST virðist ekki ráða við að virða grundvallarreglur stjórnsýsluréttar, sem ég kem að síðar.
Framkvæmd íslenskrar dýraverndarlöggjafar frá árinu 1915, þegar fyrstu lögin tóku gildi, hefur mistekist með öllu. Framkvæmdavaldið hefur færst á milli að minnsta kosti fimm opinberra aðila og aldrei náð þeirri festu sem nauðsynleg er.
Ástæðan er einföld. Þeir sem hafa úthlutað framkvæmdarvaldinu hafa ekki haft nægilega þekkingu á því hverjum væri best að fela það.
Koma verður í ljós hvort forstjóra SA auðnist að koma framkvæmd laga um velferð dýra á þann stall sem dýrin og eigendur þeirra eiga skilið. Til þess að það takist þarf forstjórinn að ráðast í umfangsmikið og krefjandi rannsóknarstarf.
Íslendingar sem hafa helgað sig dýravernd, þar á meðal ég, hafa rannsakað hvernig best sé að koma þessum málum í réttan farveg. Ég rökstuddi það í greinargerð um frumvarpið sem síðar varð að lögum um velferð dýra. Á það var ekkert hlustað.
Ég ritaði vel heppnaða meistararitgerð í lögfræði um réttaráhrif og framkvæmd dýraverndarlaga frá upphafi. Hún kom út 2011 og er að finna á skemman.is. Þar rökstuddi ég einnig það hvimleiða brölt ráðherra fyrri tíma við úthlutun framkvæmdavalds á þessu sviði og hvernig það hefur engu skilað – sökum þekkingarleysis.
Opinber úttekt Ríkisendurskoðanda á MAST – falleinkunn
Árið 2023 staðfesti Ríkisendurskoðandi algera niðurlægingu MAST í skýrslu til Alþingis og staðfesti þar með fyrri ábendingar mínar.
Þar var jafnframt bent á mikilvægi þess að Alþingi hlustaði á aðila með þekkingu, sem Ríkisendurskoðandi taldi að væri að finna meðal borgaranna. Auk þess lagði Ríkisendurskoðandi sérstaka áherslu á að MAST tileinkaði sér auðmýkt.
Í stað þess að styrkja auðmýktarímynd sína snerust svokölluð framlínustörf, eins og MAST skilgreinir dýravernd sína, upp í hroka, algeran skort á háttvísi og, að flestra mati, valdníðslu og hreint ofbeldi á köflum.
Ég fullyrði, og hef raunar rökstutt í fjölda greina, að MAST hafi meira og minna hundsað stjórnsýslulög allan starfstíma sinn.
Geta stofnunarinnar til að framfylgja lögum um velferð dýra var allan tímann langt undir eðlilegum lögfræðilegum væntingum. Nánast engin virðing var borin fyrir meginreglum stjórnsýsluréttar, hvorki skrifuðum né óskráðum.
Afleiðingin varð oft ægilegur miski fyrir þá sem neyddust til að þola vald MAST. Myndlíkingin um blóðugan slag „viðskiptavina“ við stofnunina er ekki ósanngjörn.
MAST sundraði fjölskyldum í mörgum málum og atvinnuvegaráðuneytið réði ekkert við sum þeirra og gerir ekki enn. Úrlausnir kærumála drógust og eru að dragast langt út fyrir allar málshraðareglur stjórnsýslulaga. Jafnvel í allt að tvö ár, með tilheyrandi skaða fyrir þá sem urðu fyrir barðinu á kerfinu.
Dýr hirt – miski á eigendur – níð á dýrin
Hundruð dýra hafa á undanförnum misserum verið tekin af eigendum sínum án nokkurra sannana fyrir því að brotið hafi verið gegn 1. gr. laga um velferð dýra:
„Markmið laga þessara er að stuðla að velferð dýra, þ.e. að þau séu laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma, í ljósi þess að dýr eru skyni gæddar verur. Enn fremur er það markmið laganna að þau geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt.“
Dýrunum hefur verið komið í hendur annarra, þvert á skýr fyrirmæli eignarréttarákvæðis stjórnarskrárinnar, eða þau hafa verið aflífuð án þess að nokkur lagastoð hafi verið fyrir því samkvæmt 38. gr. laga um velferð dýra.
MAST leggur engin fagleg gögn fram í þessum málum, heldur styðst við huglægt mat eftirlitsdýralækna, sem ekki eru hafnir yfir gagnrýni og getur jafnvel stangast á við mat annarra dýralækna.
Þessum óyndisúrræðum hefur verið stjórnað af lögfræðisviði dýravelferðar hjá MAST, sem í samskiptum við þolendur, sem MAST kallar viðskiptavini, hefur ætíð reynst óviðræðuhæft og alls ekki tilbúið til þess að virða 1. gr. stjórnsýslulaga, sem að meginefni miðar fyrst og fremst að því að tryggja rétta, málefnalega, vandaða og réttláta stjórnsýslu og vernda réttindi borgaranna gagnvart stjórnvöldum.
Í hnotskurn: Markmiðið er að tryggja að stjórnvöld taki ákvarðanir á lögmætan, málefnalegan, óhlutdrægan og vandaðan hátt og að borgararnir njóti raunhæfra réttinda við meðferð mála þeirra.
Aldrei, í þeim málum sem ég hef komið að – og þau eru orðin mjög mörg – hefur lögfræðisvið dýravelferðar hjá MAST gert eina einustu tilraun til þess að tryggja neitt af framangreindu.
Nýr forstjóri
Eitt af verkefnum hins nýja forstjóra er að velja rétta fólkið í hina 200 manna nýju stofnun. Í bráðabirgðaákvæði laganna verður þeim sem þegar eru starfandi við þær stofnanir sem nú er að syngja sitt síðasta gefinn forgangur að vinnu.
Menn eru þegar farnir að biðla til hins nýja forstjóra í greinarskrifum.
Fyrir nýjum forstjóra blasir við að bæta þarf verulega úr framangreindu og ég treysti honum til þess.
Verkefni nýs forstjóra verður að hrinda lögum um velferð dýra í framkvæmd og tryggja að farið sé að lögunum, stjórnsýslulögunum og, eftir atvikum, öðrum lögum sem við eiga.
Hann þarf einnig að beita sér fyrir því að hið sturlaða tjáningarfrelsisskerðingarákvæði laga um velferð dýra, sem felur í sér að einungis MAST sé heimilt að kæra illa meðferð dýra, verði fellt úr gildi og almenningur fái kærurétt sinn aftur.
Ég hef engan áhuga á þessu ákvæði. Ég er lögfræðingur og tel mig best fallinn til þess að meta og rökstyðja kæru til lögreglu fyrir sjálfan mig og skjólstæðinga mína.
Forstjórinn þarf að beita sér fyrir því að þeir sem taka við keflinu kunni að tryggja rétta beitingu ákvæða á borð við 37. og 38. gr. laganna. Það eru þau ákvæði sem heimila hinu opinbera að taka dýr af fólki, háð ströngum skilyrðum, sem í engu eru virt í dag.
Þessi ákvæði hafa, að mínu mati, verið misnotuð grimmilega af lögfræðisviði dýravelferðar MAST á undanförnum árum og ekki beitt í samræmi við skýr fyrirmæli þeirra.
Nýr forstjóri þarf að tryggja að þeir sem nú taka við framkvæmd laga um velferð dýra framkvæmi hana af háttvísi og virðingu gagnvart þeim sem lúta munu eftirliti eftirlitsdýralækna.
Þá þarf að rýna sérstaklega í starfshætti þeirra sem nú eru ráðnir, kjósi hann að kanna hvort þeir séu hæfir til endurráðningar, eins og bráðabirgðaákvæði laga um Stofnun atvinnuveganna gerir ráð fyrir.
Ég dreg það, af fenginni reynslu, stórlega í efa og hef rökstutt þá afstöðu í skrifum mínum.
Að lokum tel ég það borgaralega skyldu mína að rétta nýjum forstjóra hjálparhönd, vilji hann þiggja að ég miðli af reynslu minni af dýravernd og samskiptum við MAST síðasta rúma áratug.
Það er döpur reynsla sem má ekki endurtaka sig, enda hefur hún valdið hörmungum fyrir menn og dýr.
Gangi þér vel, Magnús, að skipuleggja og stokka upp dýravelferðarsvið Stofnunar atvinnuveganna.
Höfundur er lögfræðingur á sviði dýraverndar.