Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að frumvarpi til breytinga á húsaleigulögum hafi verið flýtt til að bregðast við stöðu kjarasamninga. Verði frumvarpið að lögum verður ekki löglegt að hækka húsaleigu nema á árs fresti og verður mánaðarleg vísitölutenging bönnuð.
Frumvarpinu er ætlað að styrkja stöðu leigjenda með auknum fyrirsjáanleika og skýrara regluverki. Með afnámi á mánaðarlegum hækkunum húsaleigu er ætlunin að draga úr vægi verðtryggingar.
„Það er að segja að það koma verðbætur og svo verðbætur ofan á verðbætur og þar sem leiguverð hefur núna, í rauninni, ráðandi vægi í mælingum vísitölu neysluverðs þá mun þetta klárlega hafa jákvæð áhrif á þær mælingar,“ segir Ragnar Þór.
Segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. Sett verður á leiguþak þar sem hækkun á leiguverði má aldrei verða meiri en hækkun samkvæmt vísitölu neysluverðs.
Tilgreina þarf í leigusamningi hvernig hækka á leiguverð.
Ætlað að bregðast við stöðu kjarasamninga
Frumvarpið er sett fram sem liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir því að kjarasamningar haldist. Ragnar Þór segir að til hafi þó staðið í lengri tíma að auka réttarvernd leigjenda. Engar efnislegar breytingar hafi verið gerðar á frumvarpinu til þess að bregðast beint við stöðu kjaramála.
„En við erum kannski að flýta þessu, myndi ég segja, til þess að koma þessu fyrr á dagskrá og koma málinu í gegn sem fyrst. Það myndi ég segja að tali sterkt inn í kjaraviðræðurnar eða kjarasamninga,“ segir hann.
Í framhaldi segir Ragnar að til standi vinna varðandi húsaleigutryggingar þar sem yfir 90 prósent mála kærunefndar húsamála snúist um uppgjör á slíkum tryggingum.