Þar segir að starfsmaðurinn Darya Shipilova hafi verið 28 ára þegar hún lést. Hún hafi starfað hjá stofnun sem rannsaki skæða faraldra og hafi verið lögð inn á spítala í bænum Shelekhov sem er skammt frá Irkutsk þar sem stofnunin er til húsa. Hún hafi svo dáið tveimur dögum síðar. Samkvæmt upplýsingum Rospotrebnadzor smitsjúkdómastofnun Rússlands greindist hún með lungnabólgu af „óþekktum uppruna.“
CNN hefur eftir stofnuninni að engar örverur sem tengist starfsskyldum starfsmannsins hafi greinst í sýnum sem tekin hafi verið úr sjúklingnum. Þá væri staðan á svæðinu hvað varði smitsjúkdóma óbreytt.
Yfirvöld í borginni Baikalsk, skammt frá, hvöttu íbúa um stutta hríð til að forðast ferðalög til Shelekhov og nærliggjandi byggða eftir það sem þau lýstu sem óopinberum upplýsingum um mögulegt pestarsmit. Síðar eyddu þau færslunni af samfélagsmiðlum, að því er fram kemur í umfjöllun Guardian.
„Engar augljósar breytingar eru á daglegu lífi á götunum, en fólk er áhyggjufullt og kvíðið. Heimamenn eru reiðir yfir því að þeim sé ekkert sagt,“ sagði Elena Trifonova, blaðamaður hjá People of Baikal, rússneskum fjölmiðli í útlegð sem sérhæfir sig í málefnum Síberíu.
Þrátt fyrir að engin staðfest greining liggi fyrir virðist sem gripið hafi verið til ýmissa varúðarráðstafana víða á svæðinu. Bandaríski fjölmiðillinn Radio Free Europe/Radio Liberty, sem fjármagnaður er af Bandaríkjunum, greindi frá því á mánudag að nokkur sjúkrahús í Irkutsk hefðu verið sett í sóttkví.
Þá fullyrti miðillinn að starfsfólk stofnunarinnar þar sem Shipilova starfaði hafi verið einangrað í húsakynnum stofnunarinnar síðan þann 2. október. Haft er eftir sjúklingum á sjúkrahúsi sem og barnaspítala í Irkutsk og Ivano að ættingjum væri ekki leyft að heimsækja þá og að fólki inni á sjúkrahúsunum væri ekki heimilt að fara út. Aðeins mætti koma með mat og persónulega muni.
Anna Popova yfirmaður Rospotrebnadzor stofnunarinnar ferðaðist til Irkutsk vegna málsins á föstudag og sat neyðarfund með svæðisbundinni sóttvarnarnefnd vegna málsins. Igor Kobzev, ríkisstjóri Irkutsk-héraðs, hvatti íbúa til að halda ró sinni eftir fund með Popova. Hann sagði í yfirlýsingu á Telegram að ekkert benti til þess að smit væri að berast á milli manna.
Guardian segir að sjúkdómar sem kenndir hafi verið við plágur séu enn landlægir í hlutum Síberíu og Austurlanda fjær í Rússlandi. Bakterían lifi í náttúrunni meðal villtra nagdýra og skordýra sem þeim fylgi. Tilfelli í mönnum séu sjaldgæf í Rússlandi. Fyrir grunaða tilfellið í Irkutsk var síðasta skráða smit í manni í landinu árið 2016, þegar tíu ára drengur í Altaí-lýðveldinu í Síberíu smitaðist af pest eftir að hafa hjálpað til við að slátra múrmeldýri.