Hingað er ráðherrann kominn til að funda með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, og heldur hann síðan til Grikklands og Frakklands á morgun.
Áður en hann steig upp í Boeing C-32A flugvél flughers Bandaríkjanna sem notuð er til að flytja ráðherra og embættismenn var Rubio spurður út í ferðina og sagðist hann spenntur fyrir henni.
Þegar blaðamaður sagði „Nú ert þú á leið til Íslands, augljóslega í dag...“ greip Rubio frammí fyrir honum og sagði: „Er það!?! Enginn sagði mér það!“
SECRETARY RUBIO on ICELAND: They're a NATO member and have been a good friend of the United States. https://t.co/WAulucikRP
— Department of State (@StateDept) October 5, 2026
Þessi hluti svars Rubio var klipptur úr myndbandi AP fréttaveitunnar sem birt var fyrr í dag.
Fréttin verður uppfærð.