Ríkasti maður heims er einhleypur, eða það má ætla eftir að ein barnsmóðir hans, Shivon Zilis, upplýsti um sambandsslit þeirra á föstudaginn.„Það er erfitt að fara frá því að vera ástfanginn yfir í að vera sparkað á einni viku án nokkurs fyrirvara, en svona er þetta bara stundum,“ sagði Zilis í færslu sem hún birti á samfélagsmiðli barnsföður síns, X. Zilis og Musk eiga saman fjögur börn, tvíburana Strider og Azure, dótturina Arcadia og soninn Seldon Lycurgus.
Greindi frá sambandsslitum hennar og Elon Musk í dramatískri færslu - „Ég er í sárum“