Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði Ísland vera góðan vin Bandaríkjanna áður en hann lagi af stað í Íslandsheimsókn í dag. „Þetta er tækifæri til að koma við þar og ræða við fólk. Þetta kemur í kjölfar samtala minna við leiðtoga Íslands á leiðtogafundi NATO fyrr á árinu og við utanríkisráðherra landsins og ég hlakka mikið til,“ sagði Rubio við blaðamenn áður en hann steig um borð í flugvél sem flytur hann til Íslands.
Samtöl við ráðamenn um samvinnu á sviði efnahags- og öryggismála eru á dagskrá bandaríska utanríkisráðherrans hér á landi. Utanríkisráðherra Íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hefur sagt varnarmál, öryggi á norðurslóðum og viðskipti vega þyngst.
Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, segir heimsóknina til merkis um aukið mikilvægi norðurslóða. Bandaríkin vilji sýna að þau taki þennan heimshluta alvarlega og þetta sé um leið tækifæri til að sýna fram á sterk tengsl Íslands og Bandaríkjanna.
Bandaríkin, Danmörk og Grænland undirrituðu á dögunum samkomulag um varnar- og öryggismál á Grænlandi eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði talað lengi um mikilvægi þess að Bandaríkin hefðu aukin áhrif á Grænlandi og tækju jafnvel yfir stjórn landsins. Ætti að líta á heimsókn Rubio til Íslands í dag með það í huga?
„Það finnst mér og sömuleiðis má kannski segja að það að Rubio sé nú að koma í diplómatískum tilgangi til þess að eiga þetta samtal við íslenska ráðamenn. Það er langt um liðið síðan bandarískur ráðamaður kom til Íslands, það eru komin nokkur ár, gott ef ekki fimm, þannig að það sýnir auðvitað þetta aukna mikilvægi sem Ísland hefur í þessu öllu saman“ sagði Pia í viðtali í hádegisfréttum.
Sömuleiðis sé Rubio mögulega að lægja öldur því að nú liggi samningur fyrir eftir ýmsar yfirlýsingar frá Hvíta húsinu sem hafi ekki verið beint til bóta fyrir samskipti landanna almennt séð.
Telur Pia að það sé stórtíðinda að vænta, eins og breytinga á varnarsamningi? „Mér finnst líklegt að þeir séu að byrja að ræða það að einhverju leyti og hafa kannski verið að ræða það, að það verði einhver frekari uppbygging hér á landi og það má kannski tengja það við að hér var náttúrulega heimsókn frá þeim sem fer fyrir hermálum Bandaríkjanna hér. Þannig að ég held að það sé að vissu leyti eitthvað sem við gætum séð koma út úr þessu líka.“