Í tilkynningu um tendrun súlunnar frá Listasafni Reykjavíkur kemur fram að dagskrá hefjist í Viðey síðdegis og standi fram að tendruninni klukkan 20.00.
Í boði verða leiðsagnir á vegum Listasafns Reykjavíkur um verk Yoko Ono og Richard Serra í Viðey ásamt sögugöngum á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur. Gestir geta líka tekið þátt í listasmiðju í Nausti.
Við Friðarsúluna sjálfa hefst hátíðardagskrá klukkan 19.45 með tónlistarflutningi Árnýjar Margrétar.
Að því loknu flytur Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur ávarp áður en Friðarsúlan verður tendruð við lagið Imagine eftir John Lennon og Yoko Ono klukkan 20.00.
Ferðir í boði Yoko Ono
Í tilkynningu kemur jafnframt fram að ferðir til Viðeyjar séu í boði höfundar listaverksins, Yoko Ono, og hefjist frá Skarfabakka klukkan 17:30. Einnig verða í boði fríar strætóferðir frá Ráðhúsi Reykjavíkur að Skarfabakka. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir fram í ferjuferðirnar.
Friðarsúlan „Imagine Peace Tower“ er útilistaverk eftir Yoko Ono sem var reist í Viðey árið 2007. Yoko Ono skapaði Friðarsúluna til að halda á lofti þeim friðarboðskap sem hún og eiginmaður hennar John Lennon töluðu fyrir og tileinkaði honum verkið sem logar frá fæðingardegi hans 9. október til áramóta.
Verkið er í formi „óskabrunns“ þar sem orðin „Hugsa sér frið“ eru rist á 24 tungumálum. Upp úr brunninum stígur ljósasúla sem samanstendur af fimmtán geislum sem sameinast í eitt sterkt ljós sem teygir sig til himins. Nánar á vef Listasafns Reykjavíkur.