Framkvæmdum er að mestu lokið við kínversk-íslenska norðurljósarannsóknastöð í Reykjadal í Þingeyjarsveit, tólf árum eftir fyrstu skóflustunguna. Byggingin kostaði um milljarð íslenskra króna.
Í landi Kárhóls, innan um beitar- og ræktarlönd, stendur rúmlega 700 fermetra hús með kúptum gluggum á þaki.
Þar eru myndavélar, sem eiga að fanga norðurljós.
Það hefur gustað um rannsóknarstöðina undanfarin ár. Fjölmiðlar sögðu frá því að Byggðastofnun ætlaði að bjóða eignina upp vegna vanskila - sem þó varð ekki raunin því kínverska ríkið borgaði brúsann.
Nato og sérfræðingar í þjóðaröryggismálum hafa lýst áhyggjum af að þarna gæti Kína stundað eftirlit og njósnir. Ríkislögreglustjóri sagði árið 2025 að óvissa ríkti um starfsemina.
Íslenskir forsvarsmenn segja stöðina ætlaða til náttúrurannsókna.