Fyrrverandi forstjóra SÁÁ og framkvæmdastjórn greindi á um hvernig standa átti að ráðstöfun sjálfsaflafjár samtakanna, að sögn formanns SÁÁ.
Mikill styr hefur staðið um samtökin síðustu vikur. Hátt settir starfsmenn hafa sagt upp störfum og þó nokkrir farið í veikindaleyfi. Þá lýsti stór hluti starfsfólks lýsti yfir vantrausti á framkvæmdastjórn og formann.
Rekja má atburðarásina til þess að Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir, fyrrverandi forstjóri SÁÁ, sagði skyndilega upp.
Hún hefur ekki tjáð sig opinberlega um það í hverju ágreiningurinn sem leiddi til uppsagnar hennar fólst.
Valgerður Rúnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga, og Þóra Björk Ingólfsdóttir, fyrrverandi fagstjóri á meðferðarheimilinu Vík, hafa þó stigið fram í fjölmiðlum og lýst því að stjórn SÁÁ hafi haft óeðlileg afskipti af faglegu starfi.
Báðar sögðu þær upp. Valgerður hefur þó snúið tímabundið til baka. Fleiri starfsmenn hafa farið í veikindaleyfi.
Þóra Björk sagði afskipti stjórnar meðal annars hafa falist í afskiptum af meðferð og því að stjórnin skipaði starfsfólk eða fæli því verkefni án samráðs við yfirmenn.
Ágreiningur um ráðstöfun sjálfsaflafjár samtakanna
Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, hefur hafnað því að stjórnin hafi haft óeðlileg afskipti af faglegu starfi innan samtakanna.
Hún sagði í Kastljósi nýverið að ágreiningur stjórnar og fyrrverandi forstjóra hefði snúið að stefnu SÁÁ. Hann hefði einnig tengst sjálfsaflafé sem hingað til hefur runnið til heilbrigðisþjónustu SÁÁ.
Eftir að nýr heildarsamningur SÁÁ við Sjúkratryggingar tók gildi fyrr á árinu greiðir ríkið fyrir stærstan hluta heilbrigðisþjónustu SÁÁ. Ekki þarf því lengur að fjármagna þá þjónustu með sjálfsaflafé í sama mæli og áður.
„Stjórnin var að reyna að fylgja eftir að þetta yrði framkvæmt og að það kæmi plan frá forstjóra um hvernig ætti að gera þetta.“
Vildu snemmtæka íhlutun og fræðslu
Anna Hildur sagði í Kastljósi að stjórn SÁÁ vildi nýta sjálfsaflaféð til að bjóða upp á þjónustu sem væri „fyrir framan“ heilbrigðisþjónustuna.
„Sem er þá fræðsla og snemmtæk íhlutun. Sem er ekki beinn hluti af heilbrigðisþjónustunni,“ sagði hún.
Stjórnin markar stefnu sem Anna Hildur segir að hafi verið forstjórans að framkvæma.
„Stjórnin var að reyna að fylgja eftir að þetta yrði framkvæmt og að það kæmi plan frá forstjóra um hvernig ætti að gera þetta.“
Valgerður hefur haldið því fram að Ragnheiði Huldu hafi verið bolað úr starfi. „Henni er gert óbærilegt að starfa eftir sinni faglegu vitund,“ sagði hún í Kastljósi í september.
Máli sínu til stuðnings sagðist hún hafa séð fyrirmæli frá stjórn til Ragnheiðar Huldu.
„Þar sem það er algjörlega óviðeigandi hvað þau eru í raun og veru að skipa henni fyrir að gera. Hún setur þarna ákveðin mörk á það hvernig forgangsröðunin er inni og hvernig tímalínan er, því hún vinnur mjög faglega. Það er ekki unað við það. Það er unnið að því að bola henni út.“
Seldu álfa fyrir 95 milljónir 2025
SÁÁ hefur fjármagnað þjónustu sína með styrkjum frá einstaklingum og fyrirtækjum samhliða opinberum fjárstuðningi.
Í áranna rás hefur starfsemin meðal annars verið fjármögnuð með sölu álfa. Þeir eru seldir tvisvar sinnum á ári, á vorin og í aðdraganda jóla.
Salan skilaði SÁÁ 95,4 milljóna króna hagnaði í fyrra. Í ár skilaði sala vorálfsins samtökunum 53,5 milljónum króna.
Samkvæmt ársskýrslu SÁÁ fyrir árið 2025 var söfnunarféð í fyrra einkum nýtt til þjónustu við börn og fjölskyldur.
„Þegar jólaálfurinn var seldur í byrjun desember var allur ágóði eyrnamerktur sálfræðiþjónustu barna hjá SÁÁ, sem er þjónusta sem sífellt fleiri sækja og sem hefur afgerandi forvarnargildi til lengri tíma litið. Með nýjum þjónustusamningi er þessi mikilvæga þjónusta tryggð til lengri tíma,“ sagði þar enn fremur.
Árið 2024 rann ágóðinn af álfasölu til ungmennadeildarinnar á Vogi og til sálfræðiþjónustu barna.