„Meirihlutinn, og reyndar Samfylkingin í borginni, voru að segja upp samningum við Aþenu. Þau ætla ekki að gefa okkur leyfi til að reisa kennslustofu eða félagsaðstöðu fyrir börnin. Á okkar kostnað eins og allt sem við höfum gert.“
Brynjar Karl er þarna að tala um baráttu Aþenu, íþróttafélags í Breiðholti sem lagt hefur áherslu á körfuknattleik stúlkna og kvenna. En árangur Aþenu hefur verið þannig að eftir er tekið.
Brynjar virðist hafa orðið fyrir sárum vonbrigðum með nýjan meirihluta. Hann segir samskiptin við Bjarna Guðjónsson hafa verið ömurleg.
„Hann, eins og embættismennirnir, hefur engan áhuga á að tala við fólkið sem hefur verið að ná árangri í hverfinu. Það virðist vera að saga hverfisins og börnin sem hérna búa skipti þetta lið engu máli. Ég bið frekar um Skúla Helgason aftur,“ segir Brynjar; hann hafi þó svarað sér stöku sinnum.
Brynjar birtir harðorða yfirlýsingu á Facebook-vegg sínum þar sem hann segir nú stefna í að Aþena verði lögð niður en það verði þó ekki gert fyrr en hann hefur átt samtal við stelpurnar sem þar æfa, foreldra og velunnara félagsins.
„Þess vegna erum við að boða til fundar í Austurbergi þriðjudaginn 6. október klukkan tuttugu. Í baráttu við óréttmæt yfirvöld.“
Brynjar hefur áður átt í átökum við borgaryfirvöld en hann segir ástæðuna fyrir því nú að þeim sé bolað út sé að þau í Aþenu séu víst „embættismenn borgarinnar vegna þess að við höfum verið að gagnrýna áhugaleysi þeirra, vanhæfni og áhugaleysi í hverfi sem er þekkt fyrir lélegan árangur. Svo birtum við líka rökstuddar greinar um hvernig farið er með fjármál borgarinnar.“
Brynjar skorar á Bjarna að mæta sér hvar og hvenær sem er til að ræða þessi mál en hann á ekki von á því að af því verði. Af fenginni reynslu.