Meirihluti Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins sem myndaður var eftir kosningarnar í maí sprakk í gær eftir fjögurra mánaða samstarf. Alls eru níu fulltrúar í bæjarstjórn. Í lok maí náðu þrír fulltrúar Samfylkingarinnar og tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks saman um myndun meirihluta í bæjarfélaginu og í ágúst réðu flokkarnir Alexöndru Jóhannesdóttur sem ópólitískan bæjarstjóra.
Fótboltavöllur í Garði, Sandgerði eða mitt á milli?
Líkt og Vísir fjallaði um fyrr í dag sprakk meirihlutinn meðal annars vegna ágreinings um staðsetningu íþróttavalla í sveitarfélaginu, sem samanstendur af tveimur bæjum, Garði og Sandgerði.
Haukur Andreasson og Haraldur Helgason, efstu tveir menn á lista Sjálfstæðisflokksins í sveitarfélaginu, hafa nú sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins.
„Afstaða okkar til þess máls er að besta leiðin til að sameina byggðakjarnana er eitt fjölnota íþróttahús á Miðjunni, milli Sandgerðis og Garðs. Hús sem nýtist öllum íbúum, ungum sem öldnum, og fleiri íþróttafélögum allt árið um kring. Samkvæmt skýrslu Verkís skapar staðsetning á Miðjunni mest jafnvægi milli kjarnanna og slík lausn nýtir fjármuni bæjarins best til lengri tíma,“ segir í henni.
Ekki megi dýpka gjána milli bæjanna
Á fundi bæjarráðs 9. september hafi þeir stutt sameiginlega tillögu allrar bæjarstjórnar í góðri trú um að hún myndi skapa jafnvægi milli kjarnanna. Fljótlega hafi komið í ljós að svo var ekki og því hafi þeir viljað við endurskoða ákvörðunina, sem hafi leitt til þess að atburðarás þróaðist á þann hátt að ekki var vilji allra til að vinna úr þeirri stöðu sem upp kom og þar með hafi meirihlutinn fallið.
„Samstarfið stóð stutt en var að mestu afar jákvætt og farsælt. Við hvetjum kjörna fulltrúa jafnt sem íbúa til að láta þessa stöðu ekki dýpka gjána milli byggðakjarnanna og sameinast undir merkjum Suðurnesjabæjar í orði og á borði. D-listi og óháðir munu áfram vinna af heilindum að hagsmunum allra íbúa, hvar sem þeir búa í bænum.“