Ráðherrann ræddi við fréttamenn rétt áður en hann steig um borð í flugvél á leið sinni til Íslands. Hann er væntanlegur hingað til lands og mun funda með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra Íslands áður en hann heldur til Grikklands og Frakklands.
Í tilkynningu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu hefur komið fram að Rubio muni ræða „efnahagsmál og öryggissamstarf“ á Íslandi. Rubio var spurður að því af blaðamönnum á flugvellinum hvaða erindi hann hefði til Íslands?
„Þau eru meðlimir í Nato og hafa verið góðir vinir Bandaríkjanna, þetta er tækifæri til þess að koma við þar og hitta þau, sem ég held að hafi ekki gerst í dágóðan tíma. Þetta er afsprengi funda sem ég átti með leiðtogum þeirra á Natofundinum fyrr á þessu ári og með utanríkisráðherranum þannig ég er spenntur og ég hef verið þar áður og ég veit ekki hvenær utanríkisráðherra heimsótti landið síðast.“
2021.
„2021? Ókei ekki svo langt síðan síðast.“