Við erum að taka fast á málefnum varðandi innflytjendur og viljum að það sé sjáanlegt að hér ríki festa og að við höfum yfirlit og eftirlit með hlutunum. Lausung í þessum málum bitnar fyrst og fremst á þeim sem standa veikast. Hluti af þessu er að efla lögregluna sem í auknum mæli þarf að kljást við vopnaða brotamenn. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Mannúðarmál að skýrum reglum sé framfylgt – lausung bitnar á þeim veikustu