Halla Gunnarsdóttir formaður VR telur líklegt að kjarasamningum verði sagt upp.
Sagt var frá því fyrr í dag að stjórn VR ætlaði að óska eftir heimild til að segja upp kjarasamningum ef ekkert breyttist í samskiptum þeirra og Samtaka atvinnulífsins (SA). Halla segir að síðan þá hafi borist viðbrögð frá SA.
„Sem eru okkur mikil vonbrigði, þar sem þau eru enn sem komið er ekki að koma til móts við þær sjálfsögðu kröfur sem við höfum gert,“ segir Halla.
„Það er ekkert í þeim viðbrögðum tilefni til annars en að við neyðumst til að segja samningum lausum.“
Félagsmenn VR eru um 40 þúsund og teljast hátt í 50 þúsund með landssambandinu. Það er stærsta stéttarfélag landsins. Samtals eru VR, LÍV og fagfélögin um helmingur hins almenna vinnumarkaðar.
Forsenduákvæði kjarasamninga brast í ágúst þegar verðbólga mældist 5,6% en hún mátti mest mælast 4,7%. Stéttarfélög hafa til fimmtudagsins 8. október til þess að ákveða hvort þau ætli að segja upp kjarasamningum eða ekki.
Telur SA ekki hafa trú á verkefninu
Trúnaðarráð VR hefur verið boðað saman til fundar klukkan 17:30 til að ræða stöðuna í kjaramálum. Ráðið er stjórn VR til ráðgjafar. Hún kemur saman að loknum fundi trúnaðarráðsins og tekur þá afstöðu til þess hvort heimild verði veitt til að segja kjarasamningum upp.
Halla á von á því að fundir muni standa til klukkan 20 í kvöld.
„Það sem er að renna upp fyrir okkur er að Samtök atvinnulífsins hafa kallað eftir því að við höfum áfram trú á verkefninu að ná niður verðbólgu og vöxtum. En miðað við þær forsendur sem þau gefa sér fyrir næsta árið og hálft annað ár þá virðast þau ekki sjálf hafa trú á verkefninu,“ segir Halla.
„Þá lítur bara út fyrir að verkefnið sé öðru fremur að við eigum að halda áfram að taka alla áhættuna og að stórir hópar innan okkar félaga eigi að taka á sig áframhaldandi launalækkun og við getum ekki unað við það,“ segir hún.
Leiðrétting: Tekið var fram í fyrri útgáfu fréttarinnar að samningum yrði sagt upp í kvöld. Einungis verður óskað eftir heimild til að segja þeim upp í kvöld en þeim verður sagt upp á fimmtudaginn 8. október ef ekkert breytist.