Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurnesjabæ harmar að meirihlutasamstarfi við lista Samfylkingarinnar sé lokið og segir það áhyggjuefni að bæjarstjórn Suðurnesjabæjar springi í annað sinn vegna „vinnslu á vallarmálum,“ að því er fram kemur í yfirlýsingu.
Þar er átt við áform um uppbyggingu gervigrasvallar í sveitarfélaginu. Völlurinn átti að vera í Sandgerði samkvæmt stefnumarkandi tillögum sem allir flokkar í bæjarstjórn samþykktu 9. september en meirihlutinn í sveitarstjórn Suðurnesjabæjar sprakk vegna sömu áforma 2024.
Í yfirlýsingu frá lista Sjálfstæðisflokksins og óháðra í Suðurnesjabæ, sem Víkurfréttir fjalla um, segir að þeirra afstaða væri að best væri að reisa eitt fjölnota íþróttahús á Miðjunni milli Sandgerðis og Garðs. Þeir hafi stutt sameiginlega tillögu bæjarstjórnar 9. september í góðri trú um að hún myndi skapa jafnvægi milli kjarnanna.
„Fljótlega kom í ljós að svo var ekki og því vildum við endurskoða ákvörðunina sem leiddu til þess að atburðarás þróaðist á þann hátt að ekki var vilji allra til að vinna úr þeirri stöðu sem upp kom og þar með féll meirihlutinn,“ segir í yfirlýsingu undirritaðri af Hauki Andreassyni og Haraldi Helgasyni, bæjarfulltrúum D-listans.
Þar hvetja þeir jafnframt kjörna fulltrúa og íbúa til þess að láta stöðuna ekki dýpka gjána milli byggðakjarnanna.