Ekkert lát er á mótmælum framhaldsskólanema í Frakklandi sem hafa staðið síðan í síðustu viku. Um 500 skólum var lokað að fullu eða að hluta í dag í öryggisskyni. Á mótmælunum hafa nemendur kveikt í ruslatunnum og jafnvel beitt kennara og skólastjóra ofbeldi. Þá hefur lögregla verið sökuð um harðræði. Samkvæmt menntamálaráðherra Frakklands hafa 190 nemendur, hið minnsta, særst síðan mótmælin hófust.
Nemendur hafa mótmælt slæmu ástandi skólabygginga, skorti á kennurum, lágum launum kennara og því að kennslustofur séu yfirfullar.
Yfir 5.000 manns, meirihlutinn ungmenni, hafa verið handtekin á mótmælunum síðustu daga. 16 ára drengur var handtekinn í gær vegna árásar á kennara í bænum La Ciotat á föstudag. Honum er gefið að sök að hafa barið kennarann og hellt yfir hann olíu.
15 ára drengur missti handlegginn í mótmælum í borginni Lens í morgun. Hann er ekki í lífshættu. Ekki er ljóst hvernig slysið bar að og eru frásagnir franskra fjölmiðla ekki samhljóða. AFP hefur eftir heimildarmanni sínum innan félags lögreglumanna í Frakklandi að svo virðist sem drengurinn hafi tekið upp gúmmíkúlusprengju sem lögregla hugðist beita gegn mótmælendum og að sprengjan hafi sprungið þegar drengurinn hélt á henni.
Annar franskur fjölmiðill hefur eftir unglingi sem varð vitni að slysinu að drengurinn hafi ekki tekið sprengjuna upp. Borgarstjóri Lens, Sylvain Robert, segir í viðtali við BBC að málið verði rannsakað.