Í yfirlýsingu frá SA er vísað til umræðu síðustu daga þar sem einstakir fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar hafi „talað um að launafólk hafi verið svikið og gagnrýnt afstöðu Samtaka atvinnulífsins vegna forsendubrests kjarasamninga“.
Þessum ásökunum er alfarið hafnað í yfirlýsingunni.
Þar segir enn fremur að finna þurfi lausn sem auki kaupmátt og skapi skilyrði fyrir lægri vöxtum.
„Sameiginlegar greiningar SA, ASÍ og stjórnvalda sýna að kaupmáttur allra samfélagshópa hefur vaxið, en vonbrigði með þróun verðbólgu og vaxta eru skiljanleg.“
Þá segir í yfirlýsingunni að ágreiningur um viðbrögð við þeirri stöðu réttlæti ekki ásakanir um svik. Það að efnahagsaðstæður hafi þróast með verri hætti en vonað var og kostnaður atvinnurekenda orðið meiri en ráð hafi verið gert fyrir við samningsgerðina hafi SA talað fyrir því að kjarasamningar haldi.
„Háir vextir þrengja að fyrirtækjum ekki síður en heimilum. Við þessar aðstæður er ekki svigrúm til launahækkana umfram það sem þegar hefur verið samið um.“
Þá segir enn fremur í yfirlýsingunni að SA hafi lagt fram skýrt mat á stöðu atvinnulífsins og það sé ekki að „skila auðu þótt niðurstaðan sé önnur en viðsemjendur okkar hefðu óskað“. Forsvarsmenn margra fyrirtækja hafi svarað kalli SA og tilkynnt frystingu verðs eða lækkun á síðustu vikum.
Þá segir að SA leggi áherslu á að draga úr kostnaðarþrýstingi og þá meðal annars með því að stjórnvöld haldi aftur af skatta- og gjaldskrárhækkunum. Það hjálpi til við að verja kjarasamninga en því miður stefni í umtalsverðar skattahækkanir með nýjum fjárlögum.
„SA vilja áfram vinna með verkalýðshreyfingunni og stjórnvöldum að niðurstöðu sem tryggir að samningarnir haldi og stuðlar að varanlegum stöðugleika.“