Íslenskur athafnamaður sem var handtekinn í Leifsstöð við komuna frá Lissabon í gærkvöldi hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Hann er grunaður um tengsl við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál sem ráðist var í aðgerðir vegna 22. september síðastliðinn
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu stóð til að handtaka manninn í þeim aðgerðum en hann hafi þá verið staddur í Portúgal.
Alls voru sautján handteknir í aðgerðunum og voru sex úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þeim hefur nú öllum verið sleppt.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er maðurinn eigandi eins fyrirtækjanna sem rannsóknin beinist meðal annars að. Hann hefur staðið í margvíslegum rekstri undanfarna áratugi bæði hér heima og erlendis, meðal annars veitingarekstri og rekstri fasteignafélaga og verktakafyrirtækja. Mbl.is sagði frá því í síðustu viku að lögregla hefði verið í sambandi við hann og hvatt hann til að koma til Íslands.