Íslenskur athafnamaður á sextugsaldri sem var handtekinn í Leifsstöð í gærkvöldi, eftir komuna til landsins, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Athafnamaðurinn var handtekinn í tengslum við umfangsmikla rannsókn á fíkniefnamisferli og peningaþvætti.Í tilkynningunni segir að hann hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 9. október í þágu rannsóknar málsinsSex aðrir hafi verið upphaflega úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins, en þeir séu allir lausir úr haldi.
Athafnamaðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald