Þetta segir í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofunnar. Nokkrir eftirskjálftar hafi fylgt í kjölfarið en allir minni en tveir að stærð.
Síðast varð skjálfti af þessari stærðargráðu í Bárðarbungu þann 28. júlí síðastliðinn en hann var 5,2 að stærð.
Skjálftar sem þessir hafi mælst reglulega síðustu misseri og tengjast kvikusöfnun í Bárðarbungu eftir Holuhraunsgosið 2014-2015.
Í gær varð jarðskjálfti af stærð 3,8 norðvestan af Grímsey klukkan 13:13. Svipaðir skjálftar hafa mælst á svæðinu undanfarna daga og eru skjálftar þar algengir.