Maður var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás með því að hafa meðal annars slegið barnsmóður sína í andlitið, tekið hana kverkataki og sparkað í hana þar sem hún lá.
Játaði skýlaust eftir að ákæruvaldið féll frá sakargiftum
Málið var tekið fyrir í héraðsdómi Austurlands í byrjun september. Þar neitaði maðurinn hluta sakargiftanna en gekkst við þeim að öðru leyti. Hann var upphaflega ákærður fyrir stórfellda líkamsárás samkvæmt 218. grein almennra hegningarlaga en játaði eftir að háttsemin var heimferð á 217. grein, sem snýr að líkamsárás.
Ákæruvaldið féll þá frá þeim sakargiftum sem maðurinn neitaði. Á endanum var hann sakaður um líkamsárás í tvö skipti: Með því að hafa veist að barnsmóður sinni á heimili þeirra með líkamlegu ofbeldi 15. janúar og 8. maí.
Í fyrra skiptið er hann ákærður fyrir að hafa slegið hana í andlitið, tekið í axlir hennar og ýtt henni niður í gólf. Í seinna skiptið með því að taka hana kverkataki með annarri hendi og síðan báðum, hrinda henni þannig að hún féll í gólf, og þar sem hún lá sparkað í síðu hennar og halda henni niðri með því að setja annan fót sinn á maga hennar og síðan haldið báðum höndum föstum.
Í dómnum segir að maðurinn hafi játað skýlaust fyrir dómi og varðar háttsemin til 1. málsgreinar 217. greinar almennra hegningarlaga, sem snýr að líkamsárás.
Tveggja mánaða fangelsi
Maðurinn hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi og í dómnum segir að það horfi honum til málsbóta að hafa gengist við brotum sínum.
„Á hinn bóginn bera málsgögn með sér, svo sem að framan er rakið,
atlögu hans að meðal annars andliti og hálsi sambýliskonu sinnar og barnsmóður, þó án þess að gögnum sé til að dreifa um hvað ætla megi að öðru leyti um alvarleika þeirrar háttsemi,“ segir í dómnum.
Maðurinn var því dæmdur í tveggja mánaða fangelsi en fullnustu refsingar skal frestað og hún felld niður að tveimur árum liðnum frá uppkvaðningu dóms, haldi ákærði skilorði. Honum var einnig gert að greiða sakarkostnað málsins, 424.080 krónur.