Ökumenn hafa eflaust flestir tekið eftir skörpum hækkunum á eldsneyti undanfarið. Bensínverð hefur hækkað um fjórðung frá því að skattalækkun stjórnvalda féll úr gildi í byrjun september og um næstum fjörutíu prósent síðan í byrjun árs. Dísilverð er orðið hærra en það var fyrir verðlækkun um áramót.
Sjö krónum hærra lítraverð og kílómetragjald að auki
Dísilverð lækkaði um næstum 90 krónur um áramótin með tilkomu kílómetragjalds, úr 293 krónum í 204 krónur, ef miðað er við ódýrustu dæluna hverju sinni. Eftir árásir Ísraelshers og Bandaríkjanna á Íran í lok febrúar tók verðið að rísa allt þar til stjórnvöld lækkuðu virðisaukaskatt á eldsneyti í maí. Lækkunin féll úr gildi í byrjun september og þá hækkaði verðið á ný og er nú 300 krónur, eða sjö krónum hærra en það var fyrir áramót.
Kílómetragjaldið bætist svo ofan á þetta. Gjaldið er á bilinu 9,85 til 13,18 krónur á kílómetra fyrir stærri bíla, eftir þyngd.
38% hækkun frá áramótum
Skoðum þá verð á bensíni. Um áramótin lækkaði verðið um ríflega hundrað kall, úr 281 krónu í 183 krónur þar sem það var ódýrast. Við sjáum sömu sveiflur vegna Íransstríðsins og lækkunar á virðisauka og við sjáum á dísilverðinu. Frá því virðisaukaskattslækkunin féll úr gildi hefur verðið hækkað um fjórðung, eða fimmtíu krónur, úr 204 krónum í 253 krónur.
Miðað við verðið um áramótin hefur bensínlítrinn hækkað um næstum fjörutíu prósent.
Líkt og með dísilinn þá bætist kílómetragjaldið ofan á þetta, en fyrir meðalbíl eru greiddar 6,95 krónur fyrir hvern ekinn kílómetra.
Bensínið búið áður en komið er í Varmahlíð
En hvað þýðir þetta fyrir hinn almenna neytanda?
Tökum sem dæmi eiganda bensínbíls sem eyðir sjö lítrum á hundraðið. Hann tók bensín fyrir fimm þúsund kall í byrjun árs og gat þá keyrt alla leið frá Reykjavík til Akureyrar. Fyrir sama pening í dag yrði viðkomandi bensínlaus um miðja vegu milli Blönduóss og Varmahlíðar. Til þess að komast alla leið til Akureyrar þyrfti hann að taka bensín fyrir sirka 1.800 kall í viðbót, eða samtals 6.800 krónur.
Með kílómetragjaldinu hefði ferðalagið kostað samtals tæpar 8.000 krónur í byrjun árs, en í dag næstum tíu þúsund kall.
Heimild: Verðlagseftirlit ASÍ