Samtök atvinnulífsins hafna öllum ásökunum um svik af hálfu þeirra, sem þau segja einstaka fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar hafa talað um, að því er segir í tilkynningu samtakanna. Þau séu ekki að skila auðu þótt niðurstaðan sé önnur en viðsemjendur hefðu óskað.
Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA segir að of oft hafi ásakanir um svik verið lagðar í umræðunni um þá viðkvæmu stöðu sem upp sé komin.
„Það sem menn verða að átta sig á er að það eru mikil vonbrigði fyrir atvinnulífið alveg eins og verkalýðshreyfinguna að vextir séu enn þetta háir og verðbólga þetta mikil,“ segir Bjarni. Slíkt komi illa við rekstrarforsendur fyrirtækja.
Halla Gunnarsdóttir formaður VR sagði við fréttastofu í dag að miðað við viðbrögð Samtaka atvinnulífsins í dag væri líklegt að kjarasamningum yrði sagt upp.
Trúnaðarráð VR boðaði til fundar sem hófst klukkan fimm. Stjórn VR kemur saman að loknum fundi trúnaðarráðsins og tekur þá afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum.
Sagt var frá því fyrr í dag að stjórn VR ætlaði að óska eftir heimild til að segja kjarasamningum upp ef ekkert bærist frá Samtökum atvinnulífsins.
20 milljarðar í nýja skatta á fyrirtæki
Bjarni segir að í nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar hafi um 20 milljarðar í nýja skatta á fyrirtæki verið boðaðir. „Sem ekki var gert ráð fyrir þegar þessir samningar voru gerðir,“ segir Bjarni.
„Þetta er bara mjög snúin staða og það sem við erum að horfa upp á núna eru kannski áhrif þess að verðbólga og vextir séu í þessum hæðum í þetta langan tíma. Það skapar mjög snúnar aðstæður,“ segir hann.
Aðspurður hvað Samtök atvinnulífsins séu tilbúin að gera til þess að samningar haldi segir Bjarni að langt sé seilst með því að láta núverandi kjarasamninga halda. Fyrirtæki séu tilbúin til að standa við þær greiðslur sem séu eftir í þeim.
„En við treystum okkur hins vegar ekki til að taka á okkur enn frekari kostnaðarauka ofan á skattahækkanir ríkisstjórnarinnar, þetta er að verða of mikið,“ segir Bjarni.
Lagðar hafi verið fram hugmyndir um það hvort samningstímabilið myndi styttast.
„Við höfum brugðist við því. Það þarf auðvitað að vera þannig að ef laun eru að hækka og þau eiga að hækka samkvæmt samningum sem eru í gildi núna um áramót gætu komið fram frekari kjarabætur á árinu,“ segir hann.
„Ef þetta á allt að ganga eftir þá þarf að vera til staðar verðmætasköpun til að rísa undir slíkum kjarabótum og við núverandi aðstæður hafa fyrirtækin ekki náð neinni framleiðniaukningu á kjarasamningstímanum.“