Jakob formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að um öflugan fund hafi verið að ræða en alls sátu áttatíu manns fundinn. Fulltrúar stjórna innan félagsins, samninganefnd og trúnaðarmenn hafi setið fundinn.
„Niðurstaðan er skýr. Við sóttum heimild til að segja upp kjarasamningum að óbreyttu. Engu að síður erum við mjög meðvituð um það að við viljum leita allra leiða til þess að komast að ásættanlegri niðurstöðu núna á næstu þremur dögum þangað til að fresturinn rennur út,“ segir Jakob.
Atkvæðagreiðsla hafi farið fram á fundinum og allir áttatíu hafi greitt atkvæði með því að segja upp samningunum að öllu óbreyttu.
„Þeir [Samtök atvinnulífsins] hafa ekkert opnað á neina efnislega vinnu. Þeir senda tilkynningar og taka svona kurteisisspjall en ekkert meira. Þannig að meðan það er þannig að þá erum við ekki í neinni annarri stöðu en að segja upp kjarasamningum.
Sjá einnig: SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp
Mögulega stíga þeir út úr þægindarammanum og vinna svolítið með okkur og þá er hægt að gera eitthvað. En þeir þurfa að nálgast okkur,“ segir Jakob
Eruð þið bjartsýn á að það breytist í millitíðinni?
„Já maður er alltaf bjartsýnn. Stundum hefur þetta nú verið þannig að það byggist upp þrýstingur eitthvað gerist. En þetta getur til beggja vona.“
Hvað búist þið við að gerist í kjölfarið ef að verður að því að samningunum verði sagt upp fimmtudag?
Jakob segir mikið af samningum undir hjá Fagfélögunum og því verði það töluverður ferill að segja þeim upp verði að því.
„Við vitum að það mun örugglega einhver véfengja það mál,“ segir Jakob.
„En svo erum við bara að reyna átta okkur á þessari stöðu og hvort við erum þá að fara að krefjast nýs langtímasamnings eða gera skammtímasamninga.“