Allar helstu poppstjörnur landsins tróðu upp, allt frá rísandi stjörnunni Alösku og ungstirnunum Maroni Birni og Elvari Orra yfir í reynsluboltana JóaPé og Króla.
Gestir voru í funheitum fíling og mikið stjörnufans var á klúbbnum. Framkvæmdastjórinn og áhrifavaldurinn Birgitta Líf, stjörnulögmaðurinn Villi Vill, raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime og húðdrottningin Helga Sigrún voru meðal þeirra sem létu sig ekki vanta.
Rapparinn og rísandi stjarnan Elvar Orri mætti í bol sem á stóð „Ég hélt líka fram hjá Elvari“ en honum var stefnt fyrir að hafa notað hljóðbút í upphafi lagsins „Miklu betri einn“ þar sem heyra má í tveimur stelpum sem rífast hástöfum og þessi fleyga lína er sögð.
Hér má sjá vel valdar myndir frá afmælinu: