Halla Gunnarsdóttir veitti stjórn VR í dag óskorað umboð til þess að segja upp kjarasamningum á fimmtudag. Hún segir boltann vera hjá Samtökum atvinnulífsins.
„Enn erum við með útistandandi kröfur, áhyggjur og óskir gagnvart SA sem miða öðru fremur að því að tryggja að stórir hópar innan okkar félaga gangi ekki áfram í gegnum launalækkanir en það hefur verið þeirra veruleiki undanfarin tvö ár.
Halla segir markmið VR fyrst og fremst vera að tryggja hópum innan félagsins stöðugleika gagnvart verðlagi en þá hafi verðlag hækkað meira heldur en laun félagsmanna, sem sé óásættanlegt.
„Það er bara ólíðandi ástand, þannig að sjálfsögðu er hægt að finna leiðir, við höfum lagt margar lausnir á borðið fyrir SA.“
Skynsamlegast að láta samninga standa
Bjarni Benediktsson segir það fyrst og fremst vera sameiginlega ábyrgð samningsaðilanna að ná niður verðbólgu og vöxtum í landinu.
„Þau segja að það sé forsendubrestur og hann er vissulega mældur samkvæmt ákvæðum kjarasamninga sem vísa til þess að einhverjir hópar hafi ekki fengið launahækkanir sem halda í við verðbólguna.“
Sé litið á málið frá sjónarhorni fyrirtækjanna segir Bjarni hlutverk þeirra vera að skipta verðmætum sem verða til en að nú sé verðmætasköpunin ekki að uppfylla þann kostnað sem kveðið sé á um í kjarasamningnum.
Bjarni telur skynsamlegast að samningar verði látnir standa.
„Það myndi þá fela í sér að laun yrðu hækkuð um næstu áramót og það kæmu frekari kjarabætur á næsta ári en það er ekki hægt að fara fram á það í fyrirtækjunum að þau komi með viðbætur við samninga sem þegar eru mjög strekktir.“