Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, og Diljá Mist Einarsdóttir, sem situr í nefndinni fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, fagna bæði heimsókn Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands. Þau voru gestir í Kastljósi í kvöld.
Pawel fagnar aukinni áherslu á varnar- og öryggismál á norðurslóðum.
„Bandarískir ráðamenn hafa reglulega komið í heimsókn til landsins en það er svolítið liðið síðan, en þetta er bara ánægjulegt,“ sagði Pawel.
„Ef niðurstaðan er sú að það sé aukin áhersla á varnar- og öryggismál hér á norðurslóðum, mögulega aukin viðvera eða þátttaka Bandaríkjanna í því, þá myndi ég persónulega telja að það myndi vera fagnaðarefni.“
Gagnrýnir sinnuleysi í garð Bandaríkjanna
Diljá er sama sinnis en gagnrýnir stjórnvöld fyrir sinnuleysi í garð samskipta við Bandaríkin.
„Mér hefur þótt það miður hvernig tímanum hefur verið varið síðastliðin tvö ár, af því að það eru tvö ár liðin af kjörtímabili þessarar ríkisstjórnar og gögn sem að við höfum dregið fram í þinginu hafa sýnt fram á að það hefur ekki verið nóg að gert,“ segir Diljá.
Hún segir of miklum tíma hafa verið varið í Evrópusambandsvegferðina, sem hún kallar feigðarflan.
Pawel hafnar því að vináttan við Bandaríkin hafi verið vanrækt.
„Við höfum ekki vanrækt þau meira en svo að nú er staddur hér á landi einn valdamesti maður í heimi, utanríkisráðherra Bandaríkjanna,“ segir Pawel.
Horfa má á allan Kastljósþáttinn í spilaranum að ofan.