Þingkosningar fara fram í Serbíu eftir 3 vikur. Háværar kvartanir hafa heyrst frá Serbum búsettum erlendis um að stjórnvöld í landinu séu vísvitandi að gera þeim erfitt fyrir við að neyta atkvæðisréttar sína. Þar á meðal eru Serbar búsettir á Íslandi en þeir segjast hafa fundið húsnæði hér á landi sem uppfylli allar kröfur en samt vilji stjórnvöld ekki samþykkja að opna kjörstað hérlendis.
Serbar á Íslandi segja að serbnesk stjórnvöld meini þeim að opna kjörstað - Sögð smeyk við atkvæði Serba erlendis