Brown var á ferð um landið með eiginmanni sínum Jake Bon Jovi, en hann er sonur tónlistarmannsins Bon Jovi. Þau heimsóttu meðal annars Skógafoss á ferð sinni um landið og fóru í hvalaskoðun.
Báðar gera þær ferðinni skil á Instagram-reikningum sínum.
Millie Bobby Brown er hvað þekktust fyrir leik sinn í Netflix-þáttunum Stranger Things sem nutu mikilla vinsælda. Hún var aðeins tólf ára gömul þegar hún skaust upp á stjörnuhimininn í hlutverki Eleven í þáttunum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Stranger Things-stjarnan heimsækir Ísland en árið 2025 var hún stödd hérlendis við tökur á lokaþætti þáttanna geysivinsælu.
Saman hafa þær Ice Spice og Brown stungið sér til sunds í sjóböðunum í Hvammsvík í góðra vinkvenna hópi.
Greint var frá því á sunnudaginn að IceSpice, sem réttu nafni heitir Isis Naija Gaston, hefði snætt á veitingastaðnum OTO á Hverfisgötu í Reykjavík.
Ice Spice er einn þekktasti rapparinn í Bandaríkjunum um þessar mundir en hún er með tæpa tólf milljónir mánaðarlega hlustendur á streymisveitunni Spotify.
Smellir hennar á borð við Boys a liar Pt. 2 með tónlistarkonunni PinkPantheress og Princess Diana með rapparanum Nicki Minaj hafa notið mikilla vinsælda.