Stjórnmálafræðingur segir útlit fyrir að úrtak könnunar sem notað var við vinnslu skýrslu um stöðu karlmanna á Norðurlöndunum hafi verið verulega skekkt. Taka þurfi niðurstöðum með fyrirvara.
Úrtakið endurspegli ekki þýðið
Alþjóðlega hugveitan Equimundo vann skýrsluna að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar og var hún birt í síðasta mánuði.
Skýrslan er sú fyrsta sinnar tegundar og byggir á niðurstöðum netkönnunar könnunarfyrirtækisins RepData.
Könnunin náði til karla og kvenna á aldrinum 18 til 45 ára á Norðurlöndunum og voru þau spurð út í hinar ýmsu hliðar karlmennskunnar.
Niðurstöður gefa til kynna að íslenskir karlmenn séu með íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en frændur þeirra á öðrum Norðurlöndum – en einn af hverjum þremur karlkyns svarendum á aldrinum 18 til 24 ára telur að ekki eigi að vera jafnrétti milli kynjanna.
Eva H. Önnudóttir, stjórnmálafræðingur við Háskóla Íslands, segir könnunina fjalla um mikilvægt mál í íslensku samhengi og niðurstöður séu sláandi.
„En það eru ónægar upplýsingar um hvernig þetta úrtak var tekið og mér sýnist að úrtakið í þessari könnun frá þessari hugveitu endurspegli ekki þýðið, sem væri fólk á aldrinum 18 til 45 á Íslandi,“ segir Eva og tekur dæmi:
„Ef maður skoðar menntunarbakgrunn svarenda þá er sagt að um tæplega 60% séu með háskólamenntun, en sambærilegar tölur meðal þessa aldurshóps á Íslandi eru um 30%,“ segir Eva.
„Þannig að þetta er strax vísbending um að úrtakið sem hafi verið notað hafi ekki verið tilviljunarúrtak, sem er eina úrtakið sem hægt er að nota til að segja að niðurstöðurnar í úrtakinu eigi líka við um aðra heldur en þá sem tóku þátt.“
Vinnubrögðin ekki nægilega vönduð
Eva segir að upplýsingar vanti um úrtaksgerðina sjálfa. Ekki sé tiltekið hvaða netpanelar hafi verið notaðir, sem skipti höfuðmáli þegar kemur að gæðum úrtaksins.
„Það eru nokkrir netpanelar í gangi á Íslandi og í suma þeirra er valið inn með tilviljun og reynt að passa upp á það að þeir sem eru í þessum nethópum séu nokkurn veginn sambærilegir við íbúa landsins. Þá nefni ég Gallup og Maskínu og nethóp Félagsvísindastofnunar,“ segir Eva.
Takmarkaðar upplýsingar séu gefnar í skýrslunni sem geri það að verkum að ekki sé hægt að leggja mat á úrtaksgerðina sjálfa. Það eina sem komi fram í skýrslunni sé að svokallað lagskipt markmiðsúrtak hafi verið notað, en ekki sé útskýrt nánar hvað felist í því.
„Það er í sjálfu sér mjög slæmt mál þegar verið er að birta svona niðurstöður þar sem vinnubrögðin virðast ekki nógu vönduð, sérstaklega ef það á að nota niðurstöðurnar til að álykta um til dæmis alla karla og konur á Íslandi sem eru á þessum aldri.“
Vissulega hafi orðið breyting á afstöðu karla og kvenna til jafnréttismála, líkt og niðurstöður Íslensku kosningarannsóknarinnar og European Social Survey gefi til kynna.
„Og þá í svona átt sem má kalla bakslag. En sú breyting er ekki jafn ýkt og kemur fram í þessari skýrslu,“ segir Eva.