Rigningar síðustu daga hafa valdið skemmdum á vegum víða um land, og malarvegir hafa orðið verst úti. Þá hafa skriður og grjót fallið á vegi á Vestfjörðum.
Víða um land rigndi svo mikið að skemmdir urðu á vegum. Aurskriður og grjót hafa fallið á vegi bæði austanlands og vestan.
Vegurinn við Áreyjarbrú í Reyðarfirði fór í sundur fyrir helgi svo að ábúendur á Áreyjum urðu innlyksa fyrripart dags. Vegagerðin brást snögglega við og búið var að fylla í skarðið síðdegis.
Skriða féll á Steinadalsveg í sunnanverðum Gilsfirði. Fyrir helgi lokaði skriða veginum milli Ísafjarðar og Hnífsdals. Á hálendinu er mikið vatn í ám og vegir hafa farið í sundur vegna vatnavaxta.
Síðustu helgi lokaði skriða Strandavegi svo að ófært var í og úr Árneshreppi. Í gær féll svo stærðarinnar bjarg á veginn. Gestir sem áttu bókaða gistingu á Hótel Djúpavík komust hvorki lönd né strönd.
Héðinn Birnir Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri Hótel Djúpavík, segir gestina þar af leiðandi ekki hafa skilað sér. „Það gefur augaleið að það kemur ekki peningur í kassann á meðan. Svo náttúrlega hafði þetta áhrif á bændurna, sláturbílarnir komust ekki leiðar sinnar.“
Héðinn bendir á að til viðbótar við sauðfjárbúskap og strandveiðiútgerð sé ferðaþjónusta að verða sífellt stærri hluti af atvinnulífinu í Árneshreppi.
„Það er erfitt að stunda rekstur með svona slæmar vegasamgöngur,“ segir Héðinn. „Við gætum vel stundað heilsársrekstur í hótel Djúpavík ef við værum með sambærilegar samgöngur og eru yfir í Ísafjarðardjúpi.“
Samkvæmt drögum að samgönguáætlun er ekki gert ráð fyrir að ráðast í umbætur á Veiðileysuhálsi, sem er helsti flöskuhálsinn norður í Árneshrepp fyrr en eftir 2030.
Vesturverk, fyrirtæki í eigu HS Orku, hyggur á framkvæmdir í Árneshreppi, þar sem til stendur að reisa Hvalárvirkjun. Í undirbúningnum hefur ítrekað verið bent á að til þess að svo megi verða þurfi vegurinn að þola meira en hann gerir í dag. „Vegurinn er ekki tilbúinn undir þá þungaflutninga sem fara í gegn þegar og ef það gerist,“ segir Héðinn. „Það er ansi langt í land og ég myndi halda að vegagerðin væri þá ansi langt á eftir hvað það varðar.“
Þó vegbæturnar á Veiðileysuhálsi séu ekki hafnar hefur vegagerðinn bætt umhverfi vegarins í sumar, meðal annars með því að grafa rásir meðfram veginum.
Héðinn bendir á að jafnvel smávægilegar framkvæmdir bæti aðstæður fólksins á Ströndum. „Þær litlu bætur sem verið er að gera hafa örugglega töluvert að segja fyrir veturinn og vetrarfærð. Vegurinn ver sig betur þegar vatnið rennur í rásum en ekki yfir veginn,“ segir hann.
Þangað til vegurinn verður bættur þarf starfsfólk hótelsins áfram að vera viðbúið að aðstoða hótelgesti við bílaviðgerðir.
Héðinn segir tilfallandi viðgerðir, demparabras og fleira hluta af starfinu á hótelinu. „Ég hugsa að ég hafi gert við fimmtíu dekk í sumar og umfelgað svona tuttugu.“