Landssamband veiðifélaga hyggst taka þátt í að kæra rekstrar- og starfsleyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Í yfirlýsingu Landssambandsins gagnrýnir það líka tafir á nýju áhættumati erfðablöndunar.
„Við bara mótmælum harðlega þessari útgáfu rekstrar- og starfsleyfis í Seyðisfirði,“ segir Jóhann Helgi Stefánsson, framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga.
Ár á Austurlandi og Norðausturlandi í hættu
Hann segir reynslu af strokum úr laxeldi sýna að lax geti ferðast langar leiðir. Ár á Austurlandi og Norðausturlandi séu undir. Sú sem rennur í Seyðisfjörð verði fyrir þungum búsifjum. „Það er alveg ljóst að þegar slepping verður mun lax leita upp í hana og ef svo illa vill til þá mun hann hrygna,“ segir Jóhann.
Í Seyðisfirði er sæstrengur, auk þess sem Norræna og önnur skip sigla þar um.
Jóhann heldur áfram: „Vá, félag um verndun Seyðisfjarðar hefur margsinnis bent á það að hann er bara þröngur, það er bara ekkert pláss fyrir þetta.“
Landssambandið vinnur að kæru
Landssambandið hyggst bregðast við útgáfu leyfisins. Í yfirlýsingunni segir: „Landssambandið mun taka þátt í að kæra ákvarðanirnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.“
Þar er líka fjallað um áhættumat erfðablöndunar, sem Landssambandið kallar eitt mikilvægasta stjórntækið í sjókvíaeldi. Leyfilegt magn eldislax við Íslandsstrendur byggir á þessu áhættumati.
Jóhann segir áhættumatið löngu úrelt og að margir gallar þess hafi verið dregnir fram. „Það sem mun gerast ef það er hlustað á vísindin að þá mun áhættumatið lækka.“
Von á nýju áhættumati erfðablöndunar
Í drögum að nýju áhættumati sem birtust í ágúst í fyrra er lagt til að heildarmagn laxa verði óbreytt, eða 106.500 tonn, ef ráðist verður í mótvægisaðgerðir. Án þeirra er lagt til, í ljósi varúðarsjónarmiða, að ekki megi ala meira en 50.000 tonn af laxi, sem er svipað og framleitt er í dag.
Hafrannsóknastofnun birti ráðgjöf sína fyrir áhættumatið í lok ágúst í fyrra. Þau sendu drögin til samráðsnefndar um fiskeldi, sem er stjórnvöldum til ráðgjafar um málefni fiskeldis. Nefndin hefur skilað athugasemdum til Hafró sem tekur nú efnislega afstöðu til álits nefndarinnar áður en endanlegt áhættumat verður gefið út.