Tímabundið drónabann verður í miðborg Reykjavíkur í dag og á morgun vegna heimsóknar Marco Rubios, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samgöngustofu.
Bannið er af öryggisástæðum og verður frá klukkan 17 í dag, 5. október, til klukkan 16 á morgun, 6. október.
Óheimilt verður að fljúga dróna, eða öðrum fjarstýrðum loftförum innan svæðisins sem er þakið rauðu á kortinu. Ómönnuðum loftförum, drónum og öðrum fjarstýrðum loftförum verður einnig óheimilt að vera á lofti eða í 500 metra radíus frá lögreglufylgd bílalestar.
Lögregla verður með drónahóp sem sinnir löggæslu og eftirliti úr lofti.