Utanríkismálastefna Bandaríkjanna hefur gerbreyst eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, komst aftur til valda og snýst meira um viðskiptahagsmuni vina hans og vandamanna en að tryggja þjóðarhag og varðveita lýðræði í heiminum. Þetta segir bandaríski sagnfræðingurinn og stjórnmálaskýrandinn Anne Applebaum. Sigríður Hagalín Björnsdóttir ræddi við hana í Silfrinu í kvöld.
Tilefnið var meðal annars bók Applebaum, Einræði hf., sem kom út nýlega í þýðingu Björns Bjarnasonar. Þar fjallar Applebaum um hvernig tengsl hafa myndast milli stjórnvalda, auðmanna, áróðursmiðla, leyniþjónustu og alþjóðlegra viðskiptaneta sem vinna að því að styðja einræðisstjórnir og veikja lýðræðisríki.
Hægt er að sjá viðtalið við Applebaum í heild sinni hér fyrir neðan.
Lýðræði ekki mikilvægt í augum Trumps
Um Trump segir Applebaum að hann sé fyrsti leiðtogi Bandaríkjanna síðan í seinni heimsstyrjöldinni og mögulega fyrr sem sjái ekki sjálfan sig sem leiðtoga hins lýðræðislega heims.
„Hann hefur ekki áhuga á bandarískum bandalögum, hann hefur ekki áhuga á að styrkja þau, hann hefur ekki áhuga á tungumáli lýðræðis og notar það ekki sjálfur,“ segir Applebaum sem teflir því fram að ríkisstjórn Trump hafi grafið undan eða lagt af margvíslegar stofnanir sem hvetji til lýðræðis víða um heiminn.
„Þetta er ríkisstjórn sem sér sjálfa sig sem mikið veldi sem getur framfylgt vilja sínum hvar sem henni sýnist. Hún styðst ekki við langtímabandalög og stofnar ekki til vináttutengsla þar sem slíkt er ekki talið mikilvægt,“ segir Applebaum.
Mikilvægt fyrir Ísland að treysta bæði á Evrópu og Bandaríkin
Hún var stödd hér á landi í sumar og skoðaði þá meðal annars herstöðina í Keflavík.
„Hún virkar enn á sama hátt og hún gerði og tengsl Íslands við önnur NATO lönd eru enn til staðar að einhverju leyti,“ segir Applebaum sem telur að í fyrsta sinn hafi leiðtogi Bandaríkjanna ekki áhuga á lýðræðislegum gildum.
„Og það er mikil breyting og það hefur áhrif bæði á bandamenn Bandaríkjanna og óvini þeirra víðs vegar um heiminn,“ segir hún.
Applebaum telur að Ísland geti að miklu leyti treyst bandaríska hernum þrátt fyrir að hún telji ríkisstjórn Donalds Trump varhugaverða. Herinn sé enn að miklu leyti óbreyttur og sjái Ísland sem nauðsynlegan þátt í sínum aðgerðum. NATO sé þá enn til staðar.
„En það verður mikilvægt fyrir Ísland að hafa tengsl við bæði Evrópu og Bandaríkin á næstu árum,“ segir hún.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom til landsins í kvöld. Þetta er fyrsta heimsókn utanríkisráðherra. Í heimsókninni ætlar hann að ræða við ráðamenn um samvinnu á sviði efnahags- og öryggismála.
Þetta er fyrsta heimsókn utanríkisráðherra Bandaríkjanna síðan Antony Blinken kom til Íslands 2021. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tilkynnti um heimsókn Rubios 1. október og sagði þá að samstarf í varnarmálum vægi þyngst í samskiptum ríkjanna ásamt öryggi á norðurslóðum og viðskiptum.